Tottenham fékk lið Sunderland í heimsókn á White Hart Lane á sunnudaginn siðasta. Fór svo að Tottenham bar sigur úr býtum 1-0 án þess að spila sérstaklega vel. Bale og Defoe voru meiddur og spiluðu ekki og þá meiddist Aaron Lennon í leiknum og gæti verið eitthvað frá. Eina mark Tottenham í leiknum skoraði Pavlouchenko eftir að hafa komið inná sem varamaður.
Leikurinn sem slíkur var ekki upp á marga fiska og ekki ýkja mörg færi sem litu dagsins ljós á sunnudaginn var. Tottenham voru samt sem áður betri aðilinn í leiknum og áttu sigurinn skilið.
Til að gera langa sögu stutta , þá skoraði Pavloychenko sigurmarkið á 61. mínútu eftir að hafa komið inná sem varamaður.
Tottenham fengu fleiri færi í leiknum en tókst bara að skora eitt mark, sem var nóg í þetta skiptið til að fá stigin þrjú sem var aðalmálið.
Lið Tottenham í leiknum :
Friedel – Walker – King – Gallas – Ekotto – Lennon ( Pavlo 27 ) – Parker – Modric – Sandro ( Livermore 82 ) – VdV ( Rose 89 ) – Adebayor
Ónotaðir varamenn :
Cudicini – Bassong – Kranjcar – Pienaar
Tölfræði úr leiknum
Með boltann
Tottenham 61 % Sunderland 39 %
Skot á mark
Tottenham 12 Sunderland 4
Skot framhjá
Tottenham 4 Sunderland 4
Hornspyrnur
Tottenham 6 Sunderland 0
.
.
BÓ






