Tottenham og Everton áttust við á WHL á miðvikudagskvöldið var , frestaður leikur frá því í fyrstu umferð deildarkeppninnar í haust þegar óeirðir voru í gangi í Tottenhamhverfinu og víðar í London. Tottenham fór með sigur af hólmi í leiknum , 2-0 þar sem Lennon og Ekotto skoruðu mörk Tottenham. Með sigrinum fór Tottenham uppað hlið Man Utd í 2.-3. sæti deildarinnar , aðeins þremur stigum á eftir Man City sem trónir á toppnum.
Flestir leikmenn sem byrjuðu leikinn gegn Everton voru búnir að fá góða hvíld, enda fengu flestir frí helgina á undan þegar liðið lék við Cheltenham í bikarnum. Parker var ekki með enda enn meiddur, á meiðslalistann voru búnir að bætast við Gallas , Sandro og King , en fyrir á listanum er enn Huddlestone.
Tottenham voru mikið mun betri í þessum leik á miðvikudagskvöld og áttu sigurinn fyllilega skilið.
Fyrsta mark leiksins leit dagsins ljós á 35. mínútu þegar Ekotto átti frábæra langa sendingu frá vinstri til hægri , beint á Aaron Lennon sem tók vel á móti boltanum og komst framhjá Baines varnarmanni Everton. Lennon brunaði inn í teiginn frá hægri og þegar hann nálgaðist vítapunktinn lét hann vaða með vinstri fæti í nærhornið framhjá varnarmanni Everton og Howard í markinu. Flott mark hjá Tottenham og vel að verki staðið. Staðan í hálfleik var 1-0 fyrir Tottenham.
Síðari hálfleikur var svipaður þeim fyrri , Tottenham voru betra liðið á vellinum án þess þó að ná að skapa sér merkilega marktækifæri. Annað markið kom svo á 63. mínútu og var það einkar fallegt.
Ekotto fékk þá boltann ca. 35-40 metrum frá marki … lék áfram nokkra metra og lét svo vaða á markið, boltinn fór aðeins í varnarmann Everton og það í fjærhornið alveg óverjandi fyrir Howard í markinu ( sjá mark HÉR ) Ekkert smá mark hjá Ekotto sem var þarna að skora aðeins sitt annað mark í Úrvalsdeildinni fyrir Tottenham ( fyrra markið var líka stórfenglegt – þrumuskot á móti Liverpool , það mark má einmitt sjá HÉR )
Tottenham virtist láta þetta duga, en Everton sóttu aðeins í sig veðrið í síðari hálfleik og hefðu með réttu átt að fá eins og eina vítaspyrnu þegar Kaboul braut á leikmanni Everton í teignum en ekkert dæmt. Livermore spilaði á miðjunni í þessum leik í fjarveru Parker og Sandro og stóð sig eins og engill, var frábær allan leikinn og á hrós skilið.
Lið Tottenham í leiknum :
Friedel – Walker – Dawson – Kaboul – Ekotto – Lennon ( Pienaar 77 ) – Livermore – Modric – Bale – VdV – Adebayor ( Pavluychenko 86 )
Ónotaðir varamenn :
Cudicini – Bassong – Kranjcar – Rose – Defoe
Tölfræði úr leiknum
Skot á mark
Tottenham 7 Everton 4
Skot framhjá
Tottenham 7 Everton 7
Hornspyrnur
Tottenham 6 Everton 4
Með boltann
Tottenham 57% Everton 43%
. .
Maður leiksins : hinn skraulegi Assou-Ekotto
.
.
.






