Tottenham lék á móti liði Wolves á White Hart Lane á laugardaginn var. Leikurinn endað með jafntefli 1-1 sem verður að teljast nokkuð slæm úrslit miðað við gengi liðsins, en þetta var "einn af þessum leikjum" þar sem liðið var miklu betra en náði bara ekki að klára dæmið. Mark Tottenham skoraði Luka Modric.
Úlfarnir komust yfir á 22. mínútu þegar Fletcher fylgdi á eftir skalla að marki sem Friedel hafði varið. Markið kom upp úr hornspyrnu sem hefði aldrei átt að vera hornspyrna og sáu það líklega flestir á vellinum nema línuvörður og dómari… en svona er boltinn. Tottenham var mun betra liðið en átti erfitt að skapa sér færi enda lið Wolves með 9-10 leikmenn við vítateiginn mestallan leikinn. Tottenham náði svo að skora undir lok fyrri hálfleiks þegar Adebayor kom boltanum yfir línuna eftir skot/sendingu frá Bale en var flaggaður rangstæður sem var alrangur dómur – ekki í fyrsta skipti sem dómgæslan er ekki að falla með Tottenham.
Eftir 6 mínútna leik í seinni hálfleik náði Tottenham loks að jafna metin. Modric fékk þá boltann fyrir utan teig og skaut föstu skoti á markið sem endaði í netinu , markvörður Wolves hefði líklega átt að gera betur !!. Stuttu seinna varði markvörður Wolves frá Modric og náði einnig að verja skot frá Lennon sem hafði náð frákastinu. Defoe kom inná sem varamaður og fékk hann líka ágætis færi en markvörður Wolves sá við honum með að verja með fótunum.
Leikurinn fjaraði út án þess að Tottenham næði að pressa almennilega að marki Wolves og liðið fékk í raun frekar fá færi í þessum leik enda spilaði Wolves fantagóða vörn með 9-10 leikmenn fyrir aftan boltann svo til all the time.
Lið Tottenham í leiknum.
Friedel – Walker – Kaboul – Dawson – Ekotto ( Rose 80 ) – Lennon ( Defoe 74 )- Parker – Modric – Bale – VdV – Adebayor
Ónotaðir varamenn :
Cudicini – Bassong – Kranjcar – Livermore – Pavlyuchenko
Tölfræði úr leiknum.
Skot á mark
Tottenham 10 Wolves 3
Skot framhjá
Tottenham 12 Wolves 2
Hornspyrnur
Tottenham 8 Wolves 1
Með boltann
Tottenham 57% Wolves 43 %
.
.
BÓ






