Aðalfundur – skemmtikvöld

0
1012

Aðalfundur Tottenhamklúbbsins á Íslandi verður haldinn föstudaginn 31.maí 2019 á Ölver í glæsibæ kl. 20.00
Strax að loknum aðalfundi verður smá uppskeruhátið þar sem snarl og mjöður/gos verður í boði klúbbsins.

Hvetjum við alla Spursara til að mæta á fundinn og eiga svo góða kvöldstund í góðra vina hópi.

Dagskrá fundar:

1. Skýrsla stjórnar
2. Reikningar síðasta árs
3. Kosning stjórnar
4. Önnur mál

Vonandi sjá sem flestir félagsmenn sér fært að mæta og gaman væri að sjá ný andlit á staðnum. Ef einhver hefur áhuga á að bjóða sig fram í stjórn Tottenhamklúbbsins má hinn sami hafa láta vita á e-mailið spurs@spurs.is. Nýir aðilar sem vilja leggja eitthvað á vogarskálarnar við rekstur klúbbsins eru mjög velkomnir á fundinn – margar hendur vinna létt verk.

Stjórnin