Tottenham lék á sunnudaginn var við Manchester United á heimavelli og fór svo að liðin skildu jöfn 1-1. Mark Tottenham skoraði Dempsey á 93 mínútu leiksins.
Tottenham var betra liðið í leiknum og sköpuðu sér fleiri færi, en það var Man. Utd. sem komst yfir í fyrri hálfleik þegar markamaskínan í liði þeirra , Van Persie skallaði boltann frá markteig í markið. Staðan 0-1 og Tottenham betra liðið í leiknum ef eitthvað var.
Í síðari hálfleik jókst sóknarþungi Tottenham og á köflum fór lið Man. Utd. varla yfir miðju vallarins. Tottenham fengu nokkur færi en De Gea í marki Man. Utd. var vel á verði í leiknum og varði nokkrum sinnum mjög vel. Það var svo í „Fergie“ time að Dempsey jafnaði metin fyrir Tottenham þegar hann fékk sendingu frá Lennon inn í teiginn og setti boltann í hornið. Jafntefli niðurstaðan sem var verðskuldað fyrir Tottenham hið minnsta því tap hefði verið mjög ósanngjarnt.
Lið Tottenham í leiknum.
Lloris – Walker – Dawson – Caulker – Naughton ( Ekotto 64 ) – Lennon – Parker ( Huddlestone 80 ) – Dembele – Bale – Dempsey – Defoe
Ónotaðir varamenn:
Friedel , Vertonghen , Gylfi , Livermore , Townsend.
Tölfræði úr leiknum.
Með boltann
Tottenham 52 % Man. Utd. 48 %
Skot / á markið
Tottenham 23 / 18 Man. Utd. 6 / 4
Hornspyrnur
Tottenham 9 Man Utd 4









