Jæja, langt síðan skrifað hefur verið á síðuna, líklega helsta ástæðan að árás var gerð á síðuna um daginn og fór hún í algera steypu ásamt spjallborðinu , spjallborðið komst á ról innan örfárra daga en síðan var ennþá slösuð og þurfti t.d. að endurræsa alla notendur og lykilorð – en síðan er alla vega up and running núna og kominn á nýjan server sem á að vera öruggari og hraðvirkari.
HÓPFERÐIN Í VOR
Það seldist upp í hópferðina á einungis fimm dögum og eftir að það seldist upp í ferðina fékk klúbburinn betri kjör á fluginu ásamt því að klúbburinn úti lækkaði verð á membershipgjöldum, þannig að þegar upp var staðið kostaði þessi þriggja nátta ferð aðeins 79.900.- miðað við tvo í herbergi, sem er frábært verð.
FÉLAGSSKIPTAGLUGGINN
Tottenham gerðu ekki mikið undir lok félagsskiptagluggans í janúar. Holtby var keyptur fyrir lítinn pening frá Schalke ( en hann var búinn að semja um að koma frítt í sumar ) og voru það einu viðskiptin undir lok gluggans með leikmenn til liðsins. Townsend og Jenas fóru út á láni til Harry Houdini hjá QPR. Falque fór til Almeria á Spáni á láni, Gomez markvörður fór til Hoffenheim í Þýskalandi á láni. Svo fóru tveir ungir á láni einnig , þeir Alex Pritchard til Peterborough og Ryan Mason til FC Lorient í Frakklandi.
SÍÐUSTU LEIKIR
Tottenham hefur verið á góðu skriði í deildinni og hafa unnið tvo leiki og gert eitt jafntefli í síðustu þremur deildarleikjum, eða frá því við gerðum jafntefli heima við Man. Utd.
Bale hefur verið allt í öllu í þessum þremur leikjum sem voru 1-1 jafntefli á útivelli gegn Norwich þar sem Bale jafnaði leikinn undir lokin. Svo kom sigur á útivelli gegn WBA þar sem Bale skoraði sigurmarkið á glæsilegan hátt. Og svo um síðustu helgi vannst heimasigur á Newcastle þar sem Bale skoraði bæði mörkin.
Á milli þessara deildarleikja spilaði Tottenham svo í FA bikarnum og tapaðist sá leikur á útivelli gegn hinu fornfræga félagi Leeds Utd , 2-1.
Í kvöld spilaði svo Tottenham í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar og var leikið gegn Franska liðinu Lyon á heimavelli. Enn og aftur var það Bale sem stal sviðsljósinu í 2-1 sigri Tottenham, en hann skoraði bæði mörk liðsins. Bæði mörkin voru einkar glæsileg, beint úr aukaspyrnum. Bale hefur núna skorað síðustu 6 mörk Tottenhamliðsins, sem er auðvitað frábært afrek fyrir Bale, en kannski ekki eins gott fyrir liðið að einn maður skuli vera að sjá um markaskorunina um þessar mundir.









