Tottenham vann sinn sjötta sigurleik í röð í Ensku Úrvalsdeildinni á laugardaginn var þegar Bolton kom í heimsókn á WHL. Lokatölur 3-0 þar sem Bolton missti Gary Cahill útaf með rautt spjald eftir einungis 18 mínútur. Mörk Tottenham í leiknum skoruðu Bale , Lennon og Defoe. Með þessum sigri fór lið Tottenham í annað sætið í deildinni í nokkrar klukkustundir …
Tottenham byrjaði leikinn af krafti og eftir 7 mínútna leik var staðan orðin 1-0 þegar Bale skoraði eftir hornspyrnu Modric , kom askvaðandi á nærstöngina og kom boltanum yfir línuna.
Um 10 mínútum síðar fékk Gary Cahill varnarmaður Bolton rautt spjald eftir brot á Parker við miðlínu vallarins , vægast sagt strangur dómur en lítið hægt að segja við því. Tottenham héldu áfram að sækja og fengu ágætis færi en markvörður Bolton var í góðu stuði. Bolton menn fengu líka sín færi og héldu áfram að ógna marki Tottenham þrátt fyrir að vera 10 gegn 11 á vellinum.
Það var svo ekki fyrr en á 50. mínútu að Tottenham komst í 2-0 þegar Lennon fékk boltann í teignum og lék til hliðar og átti afbragðsgott skot á nærstöngina sem markvörður Bolton réði ekki við. Aðeins 10 mínútum siðar skoraði Tottenham aftur og var þar að verki Defoe eftir að Bale hafi skallað hornspyrnu til hans.
Tottenham voru mikið mun sterkari og hefðu átt að skora fleiri í þessum leik en nýtingin á færunum var ekki nægilega góð. 3-0 sigur og liðið er áfram á sigurbraut í deildinni. 6. sigurleikurinn í röð sem er félagsmet í úrvalsdeildinni hjá Tottenham.
Lið Tottenham í leiknum :
Friedel – Ekotto – Kaboul – Gallas – Walker – Bale – Parker ( Livermore 85 ) – Modric – Lennon ( VdV 73 ) – Defoe – Adebayor
Ónotaðir varamenn : Cudicini – Bassong – Corluka – Pienaar – Pavlyuchenko
Tölfræði :
Með boltann
Tottenham 68 % Bolton 32 %
Skot á mark
Tottenham 16 Bolton 9
Skot framhjá
Tottenham 9 Bolton 4
Hornspyrnur
Tottenham 7 Bolton 6
.
.
BÓ






