Tottenham heimsótti Emirates Stadium á sunnudaginn var og lék gegn liði Arsenal. Fyrir leikinn var Tottenham 10 stigum fyrir ofan Arsenal sem hefur ekki þekkst síðustu árin. Tottenham átti ekki góðan dag og töpuðu leiknum 5-2 þar sem Arsenal lék mjög vel. Mörk Tottenham skoruðu Saha og Adebayor.
Tottenham fékk sannkallaða óskabyrjun í leiknum þegar Saha skoraði eftir einungis fjórar mínútur , með skoti sem breytti all svakalega um stefnu og fór yfir markvörð Arsenal. Eftir markið fór Arsenal að sækja meira og voru betra liðið á vellinum. Það var svo gegn gangi leiksins að Tottenham komst í 0-2 á 34. mínútu. Bale fékk þá frábæra sendingu í gegnum vörn Arsenal , lék á markvörðinn en var felldur og víti dæmt. Adebayor steig á punktinn og skoraði af öryggi, staðan 0-2 og maður var vart að trúa þessu.
En Adam var ekki lengi í paradís því sex mínútum eftir seinna mark Tottenham náði Arsenal að minnka muninn í 1-2 og var þar að verki bakvörðurinn Sagna með sitt fyrsta mark á tímabilinu fyrir Arsenal. Aðeins þremur mínútum síðar eða á markamínútunni frægu jafnaði Arsenal leikinn þegar Van Persie skoraði með góðu skoti fyrir utan teiginn eftir arfaslaka hreinsun hjá Ekotto.
2-2 var staðan þegar gengið var til búningsklefa í hálfleik.
Síðari hálfleikur byrjaði af krafti og Arsenal sem fyrr betra liðið , H.Redknapp gerði tvær breytingar á liðinu í hálfleik, Saha og Kranjcar fóru útaf og Vaart og Sandro komu inn. Var ekki alveg að fíla þessar skiptingar hjá Redknapp.
Síðari hálfleikur var aðeins 6 mínútna gamall þegar Arsenal komst í 3-2. Rosicky skoraði þá á nærstöng eftir fyrirgjöf frá hægri, þarna virtist öll sund lokuð og ekkert gekk hjá Tottenham. Spilið var lélegt og ill gekk að halda boltanum. Arsenal gerði svo útum leikinn með tveimur mörkum á þremur mínútum um miðjan seinni hálfleik. Walcott að verki í bæði skiptin.
Leikur Tottenham olli þónokkrum vonbrigðum , liðið náði aldrei upp almennilegu spili , en þess má þó geta að Arsenal spliaði mjög vel og pressuðu hátt upp völlinn á leikmenn Tottenham sem voru í vandræðum mest allan leikinn.°
Saha ( VdV 46 ) , Kranjcar ( Sandro 46 ) , King ( Dawson 82 )
Ónotaðir varamenn :
Cudicini , Lennon , Rose , Defoe
Tölfræði úr leiknum.
Skot á mark
Arsenal 13 Tottenham 4
Skot framhjá
Arsenal 8 Tottenham 4
Hornspyrnur
Arsenal 7 Tottenham 5
Með boltann
Arsenal 56% Tottenham 44%
.
.
BÓ






