Steindautt jafntefli gegn Stevenage

0
776

Tottenham lék gegn Stevenage í FA bikarnum um síðustu helgi og var spilað á heimavelli Stevenage.   Leikurinn endaði 0-0 og þurfa því liðin að leika að nýju á heimavelli Tottenham , WHL.

Leikurinn sem slíkur var ekki uppá marga fiska en lið Stevenage barðist eins og ljón allan leikinn og uppskáru jafntefli sem verður að teljast frábær úrslit fyrir þá og að fá nýjan leik á WHL á eftir að styrkja budduna hjá liði Stevenage.

Búið er að draga í næstu umferð , og ef Tottenham nær að slá út Stevenage , er það heimaleikur gegn Bolton næst á dagskránni.