Lið Newcastle kom í heimsókn á White Hart Lane á laugardaginn var og fóru þaðan aftur tómhentir. Tottenham lék við hvern sinn fingur og gjörsigruðu lið Newcastle 5-0. Mörk Tottenham skoruðu Saha 2 , Adebayor , Ekotto og Krancjar. Þess má til gamans geta að Adebayor lagði upp 4. mörk í leiknum og skoraði sjálfur eitt, stórleikur hjá honum.
Leikurinn á laugardaginn var ekki nema fjögurra mínútna gamall þegar Tottenham skoraði fyrsta markið. Adebayor tók þá þríhyrningaspil fyrir utan teiginn , fékk boltann aftur og lék í átt að endamörkum, þar sem hann átti fína sendingu með jörðinni á fjærstöng þar sem Ekotto kom einn og óvaldaður og átti ekki í erfiðleikum með að skora í tómt markið.
Aðeins tveimur mínútum síðar var staðan orðin 2-0. Adebayor fékk þá sendingu upp hægri kantinn , með mann í sér náði hann fínni fyrirgjöf sem rataði beint á Saha sem kom hlaupandi inn í teiginn sem tók boltann í fyrsta og setti yfir Krul í marki Newcastle , glæsilegt mark í alla staði.
Newcastlemenn vissu ekki hvort þeir væru að koma eða að fara , spilamennskan þeirra var alveg skelfilegt og Tottenam réði gangi leiksins gjörsamlega. Ekki þurftu áhorfendur á White Hart Lane að bíða lengi eftir næsta marki , en það kom á 20. mínútu. Modric átti þá gott hlaup í átt að vítateigshorninu vinstra megin og fékk frábæra sendingu frá Ekotto. Lék aðeins inn í teiginn og sendi svo fyrir , beint á Adebayor sem lagði boltann út í teiginn á Saha sem tók boltann í fyrsta og skoraði framhjá Krul.
Markaregnið hélt áfram og þegar 34. mínútur voru komnar á klukkuna skoraði Tottenham fjórða markið. Tottenham átti hraða sókn sem endaði með því að Adebayor komst í færi en Krul varði í markinu, boltinn barst aftur til Adebayor sem kom boltanum að lokum til Krancjar sem skoraði ,hans fyrsta mark á tímabilinu.
Staðan í hálfleik var því 4-0 og aðeins eitt lið á vellinum.
Síðari hálfleikur var ekki jafnfjörugur og sá fyrri enda leikurinn svo til búinn. Tottenham náði samt að bæta við einu marki í síðari hálfleik en það gerði Adebayor eftir góðan undirbúning Saha. Með þessu marki kórónaði Adebayor leik sinn , en hann hafði lagt upp fyrstu fjögur mörk leiksins. 1 mark og 4 stoðsendingar hjá kappanum á laugardaginn og gaman að fá hann í gang aftur eftir smá lægð sem hann hefur verið í og fengi gagnrýni fyrir.
.
Lið Tottenham í leiknum
Friedel – Walker – Dawson – King ( Nelson 75 ) – Ekotto – Krancjar – Modric – Parker – Bale ( Lennon 67 ) – Saha ( Defoe 67 ) – Adebayor
Ónotaðir varamenn
Cudicini – Khumalo – Rose – Livermore.
.
Tölfræði úr leiknum.
Skot á mark
Tottenham 9 Newcastle 3
.
Skot framhjá
Tottenham 9 Newcastle 4
.
Hornspyrnur
Tottenham 4 Newcastle 3
.
Með boltann
Tottenham 63 % Newcastle 37 %
.
.
BÓ






