Nýr samningur fyrir Jol

0
639

Þjálfari Tottenham, Martin Jol, skrifaði í dag undir nýjan 3 ára samning við félagið. Martin tók við starfi yfirþjálfara í nóvember í fyrra eftir að hafa gengið til liðs við félagið sumarið 2004. Daniel Levy stjórnarformaður Tottenham Hotspur sagði að félagið væri alltaf að reyna að sýna þökk sína við starfsfólk og að þessi nýi samningur sýndi að Martin væri búinn að gefa öllum tengdum félaginu nýja og raunverulega von um góðan árangur.

Jol sagði sjálfur: „Ég hef ávallt verið fullkomlega trúr félaginu og það gleður mig að félagið endurgjaldi mér það á þesnnan hátt”.

„Félagið hefur sett saman hóp leikmanna sem er líklega sá yngsti í Úrvalsdeildinni og þess vegna ríkir mikil bjartsýni hér. Framtíðin er björt og vill ég vera hluti af henni”.

„Við eigum enn langt í land áður en við náum markmiðum okkar, en ég er staðráðinn að einbeita að fullu að ná þessum markmiðum”, sagði Martin Jol