Jafntefli í lélegum leik

0
589

Það er fátt hægt að segja um leikinn á miðvikudag. Leikurinn í heild var lélegur og grófur að hálfu Blackburn. Við náðum aðeins einu skoti á markið allan leikinn. Jol gerði þrjár breitytingar á liðinu að hans sögn til að hvíla Defoe og vegna þess að Carrick og Davids hefðu orðið fyrir hnaski í Middlesbrough leiknum. Inn á miðjuna komu Brown sem er að koma úr meisðlum og Mendes. Keane lék í framlínunni fyrir Defoe. Neill hjá Blackburn var rekinn af velli á 76. mínútu en það dugði okkar mönnum ekki til að skora mark. 

Liðið: Robinson, Stalteri, Dawson, Gardner, Edman, Mendes (Defoe, 81), Brown, Tainio, Reid, Keane, Mido (Davids, 54). Varamenn: Naybet, Carrick, Cerny