Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Rob Styles hefur þvælst fyrir okkur. Að senda Mido útaf var alltof harkaleg aðgerð. Gult hefði verið eðlilegt og aukaspyrna. Á síðustu leiktíð dæmdi hann undanúrslitaleikinn í FA bikarnum gegn Newcastle og dæmdi af okkur löglegt mark ásamt því að dæma ekki tvö klár víti. Hann kom einnig við sögu í leik gegn Birmingham þar sem Savage lét sig detta í teignum og fékk víti. Í leiknum á laugardag dæmdi hann aðeins aukaspyrnu og gult þegar Davids var felldur, kominn einn innfyrir, þegar hægt hefði verið að dæma rautt á Essien. Það verður svo að segja til að gæta sanngirni að við hefðum getað fengið víti á okkur þegar Robinson fór í bolta sem Drogba var að ná og Drogba féll við. En brottrekstur Mido snéri leiknum við því við vorum betri fram að því. Fyrra markið var hinsvegar vegna mjög lélegrar dekkunar í hornspyrnunni og þá ekki bara á del Horno því það voru margir Chelsea menn fríir. Seinna var svo með heppnisstimpli á sér þegar Duff fékk boltann í sig líkt og Drogba í Arsenal-Chelsea. Mér fannst utan við þetta okkar menn standa sig vel í þessari nánast vonlausu baráttu einum færri gegn besta liði Úrvalsdeildarinnar. Það sást þó að við verðum að fá stóran framherja í stað Kanoute áður en ágúst er allur. Dawson er ekki svarið.






