Tottenham – Liverpool

0
667

Búið er að gefa það út að Ledley King, fyrirliði Spurs, sé búinn að ná sér af sínum meiðslum og geti verið með gegn Liverpool á morgun. King hefur ekkert leikið á þessu tímabili og mun innkoma hans án efa hafa mjög jákvæð áhrifa á alla leikmenn liðsins. Þá er aðeins Wayne Routledge og Pamarot meiddir en þeir Mounir el Hamdaoui og Sean Davis hafa náð sér af sínum meiðslum. Einnig er Mido í leikbanni eftir að hafa verið rekinn útaf gegn Chelsea.

Martin Jol hefur viðurkennt að eftir kaupin á Jermaine Jenas sé hann jafnvel með of marga miðjumenn en hann bendir einnig á að hef margir lenda í meiðslum er gott að vera með góða menn til að koma inn í liðið. Búist er við að Jenas byrji leikinn gegn Liverpool en ekki er víst hverjir verða með honum á miðjunni en Jol þarf að velja á milli Carrick, Davids, Mendes og Brown.

Þess má geta að Tottenham hafa ekki tapað tveimur leikjum í röð síðan Martin Jol tók við þannig að tölfræðilega séð ættum við ekki að tapa leiknum. Auk þess hafa Spurs aðeins tapað einu sinni fyrir Liverpool í síðustu 8 heimaleikjum sínum í deildinni.

Ef Robbie Keane byrjar leikinn mun það vera í 100. skipti sem hann gerir það fyrir Spurs og að sama skapi myndi Jermain Defoe leika sinn 200. leik í deildarkeppninni á Englandi ef hann byrjar.

Hópur Tottenham: Robinson, Cerny, Stalteri, Young-Pyo, King, Dawson, Gardner, Reid, Lennon, Tainio, Carrick, Jenas, Davids, Keane, Rasiak, Defoe, Kelly, Brown, Mendes.

Líklegt byrjunarlið: Robinson, Stalteri, King, Dawson, Lee, Jenas, Davids, Carrick, Reid, Keane, Defoe.