Lennon gæti reynst mikilvægur

0
596

Martin Jol hefur trú á að Aaron Lennon gæti reynst liðinu afar mikilvægur í næstu leikjum eftir að hafa átt góða innkomu í leikinn gegn Chelsea. Lennon var keyptur í sumar frá Leeds og var leikurinn gegn Chelsea fyrsti leikur hans fyrir Spurs í Úrvalsdeildinni. Næsti leikur Spurs er gegn Evrópumeisturum Liverpool og er Jol hvergi banginn að leyfa Lennon að spreyta sig í þeim leik.

„Ég setti Aaron Lennon inn á gegn Chelsea og miðað við þann leik held ég að við getum notað hann á þessu tímabili,” sagði Martin Jol um Aaron Lennon.