Routledge frá í 2 mánuði í viðbót

0
563

Eins og flestir vita meiddist Wayne Routledge í fyrsta leik tímabilsins gegn Portsmouth og hefur ekkert verið með síðan þá. Þá var sagt að meiðslin yrðu 2 mánuðir en nú hefur Martin Jol verið tjáð að hann muni ekki geta hafið keppni að nýju fyrr en eftir 2-3 mánuði. Þetta eru náttúrulega mjög slæmar fréttir fyrir liðið því að hægri kanturinn hefur verið frekar dauður undanfarið.

Martin Jol sagði um meiðsli Routledge: „Wayne er enn frá vegna fótmeiðslana, það gæti tekið 2-3 mánuði í viðbót”.

„Þetta eru sérstaklega erfið meiðsli – þekkst hefur að leikmenn hafa verið frá heilt tímabils vegna svona meiðsla.”

En það er kannski von að vandamálið á hægri kantinum leysist því að Aaron Lennon átti góða innkomu gegn Grimsby og verður án efa í byrjunarliðinu á mánudaginn gegn Fulham. En það sem Lennon vantar er líkamlegur styrkur, og það sýndi sig greinilega í leiknum gegn Liverpool, en það ætti ekki að hefta framgöngu hans í næstu leikjum því að hraði og snerpa hans mun án efa gera nokkrum varnarmönnum lífið leitt.

DEILA
Fyrri fréttKeane og Defoe byrja
Næsta fréttMeiðslaskýrsla