Keane og Defoe byrja

0
738

Gregorz Rasiak má ekki leika með liðinu á morgun gegn Grimsby því að hann er nú þegar búinn að leika í Deildabikarnum fyrir Derby. Það þýðir að Robbie Keane og Jermain Defoe verða óhjákvæmilega í byrjunarliðinu. Þær fréttir hafa hins vegar borist að Anthony Gardner muni vera frá keppni næstu 2 mánuðina en hann meiddist á læri gegn Villa. Þá verður Edgar Davids ekki heldur með en hann hefur ekki náð sér af fullu af meiðslunum sem hann hlaut í síðustu viku.

Það þýðir að Ledley King mun hafa annaðhvort Goran Bunjevcevic, Tom Huddlestone eða Nourredine Naybet við hlið sér í vörninni. Einnig er líklegt að Aaron Lennon fái tækifæri á miðjunni og jafnvel Sean Davis sem hefur ekkert verið með á þessu tímabili.

Hópurinn: Robinson, Cerny, Stalteri, King, Naybet, Lee, Bunjevcevic, Kelly, Jenas, Carrick, Reid, Brown, Davis, Huddlestone, Keane, Defoe, Lennon