Portúgalinn Pedro Mendes, sem keyptur var til félagsins sumarið 2004, hefur sagt í enskum blöðum að hann vilji snúa aftur til síns heimalands. Mendes var einn besti leikmaður Spurs í fyrra en missti af síðustu mánuðum síðasta tímabils vegna meiðsla. Hann hefur ekki náð að endurheimta sæti sitt, og ekki hjálpar það honum að margir nýir miðvallarleikmenn hafa verið keyptir.
„Ég vil fara aftur til Portúgal. Ég vil ekki að það sé litið framhjá mér lengur. Ef ég er ekki í plönum þjálfarans þá vill ég komast burt”.
„Ég átti gott fyrsta ár, en meiðslin komu í veg fyrir að ég spilaði meira. En það getur ekki verið að það sé ástæðan fyrir þessu”, sagði Mendes og sagðist ekki vita hvort hann væri að fara aftur til Porto.






