Keane bjargar málunum

0
626

Robbie Keane tókst að tryggja Spurs jafntefli í erfiðum leik gegn Aston Villa á laugardaginn. Villa höfðu komist yfir snemma leiks og voru betri aðilinn í fyrri hálfleik. Það voru gerðar tvær breytingar á liðinu frá síðasta leik, Reid og Tainio komu inn fyrir Davids og Lennon.

Jermain Defoe lek einna best í fyrri hálfleiknum en hann þegar hann fékk tækifæri til að jafna leikinn úr vítaspyrnu, hitti hann boltann illa og varði markvörður Villa spyrnuna. Staðan var 1-0 í hálfleik og leikmenn Spurs gátu þakkað Paul Robinson að vera ekki meira undir en það.

Seinni hálfleikurinn var ekki mikið skárri en innkoma Robbie Keane um miðjan hálfleikinn hafði mjög jákvæð áhrif. Hann gerði hvað sem hann gat til að skapa færi og hann uppskar mark rétt fyrir leiklok sem tryggði Spurs eitt stig. Jermain Defoe átti einnig skot í slánna þegar hann var kominn í gegn en jafntefli var í raun sanngjörn úrslit.

Þessi leikur sýndi kannski að leikmenn Spurs eru farnir að læra hvernig á að redda sér, út úr hreint út sagt skelfilegum leik, og sagði Martin Jol að líklega hefðu þeir tapað þessum leik í fyrra – sem er hárrétt.

Lið Spurs: Robinson 8, Stalteri 4, King 7, Gardner 6(Naybet 39, 5), Lee 6, Tainio 5, Jenas 5, Carrick 5, Reid 6(Keane 67, 9), Defoe 7, Rasiak 3. Varamenn: Cerny, Brown og Lennon.

DEILA
Fyrri fréttAston Villa – Spurs
Næsta fréttMendes vill burt