Aston Villa – Spurs

0
748

Á morgun fer fram leikur Tottenham og Aston Villa á Villa Park, heimavelli þeirra síðarnefndu. Leikmenn Villa munu án efa mæta ákveðnir í þennan leik eftir 4-0 stórtap gegn nýliðum West Ham á mánudaginn en þeir hafa yfir sterku liði að ráða á þessu tímabili. En Spurs eru einnig með sterkt lið og styrkist það enn frekar með innkomu Wayne Routledge sem er í hópnum eftir að hafa náð sér af meiðslum í tá.

Edgar Davids er hins vegar tæpur fyrir leikinn og ræðst það ekki fyrr en á morgun hvort hann verði með í leiknum. Einnig er Mido enn í banni, Noe Pamrot er ekki búinn að ná sér af meiðslum og verður Michael Dawson heldur ekki með vegna meiðsla.

Spurs eru enn ósigraðir á útivelli á þessu tímabili og mun Martin Jol vonast eftir því að það standi enn eftir leikinn. Samt er útlitið ekki gott því að Tottenham hafa aðeins sigrað Villa einu sinni á Villa Park síðan Úrvalsdeildin var stofnuð 1992.  En síðasti leikur liðana, undir lok síðasta tímabils, gefur Spurs þó von því að hann fór 5-1.

Varnarleikur Spurs hefur einnig verið mjög sterkur undanfarið og hafa liðið 18 leikir síðan liðið fékk á sig fleiri en 2 mörk, en áður en Jol tók við hafði það verið algengt að fá á sig 3-4 mörk nokkrum sinnum á ári.

Paul Robinson mun leika sinn 50. leik fyrir Tottenham en hann hefur verið lykillinn af þessum góða varnarleik ásamt fyrirliðanum, Ledley King.

Þó svo að Aston Villa hafi verið gjörsigraðir í síðasta leik sínum býst Jol við erfiðum leik. „Ég tel vera mikinn mun á Villa á heimavelli og útivelli. Þeir spila yfirleitt góðan fótbolta þennig að við þurfum að pressa þá allan leikinn.”

„Ef þú lítur á leik liðana á Villa Park í fyrra skoraði minnsti leikmaður þeirra eftir horn, þannig að vonandi höfum við bætt leik okkar síðan þá,” sagði Martin Jol um leikinn á morgun.

Hópur Tottenham: Robinson, Stalteri, King, Gardner, Young-pyo, Lennon, Brown, Jenas, Carrick, Davids, Rasiak, Keane, Defoe, Naybet, Cerny, Reid, Kelly og Routledge.

DEILA
Fyrri fréttTveir til Derby
Næsta fréttKeane bjargar málunum