Á morgun fer fram leikur Tottenham og Charlton á heimavelli Charlton ,The Valley. Tottenham hefur yfirleitt ekki gengið vel gegn öðrum Lundúnaliðum, og einna verst gegn Charlton. Leikmenn Spurs fara inn í þennan leik með bjartsýni eftir 1-0 sigurinn á Fulham en ef þeir ætla sér að leggja Charlton af velli þá þurfa þeir að leika mun betur en gegn Fulham. Þeir Michel Carrick og Michel Dawson eru báðir ekki búnir að ná sér að fulli af meiðslum sínum þannig að ekki er talið að þeir verði með.
„Dawson og Carrick eru báðir að nálgast en þessi leikur kemur líklega aðeins of snemma fyrir þá,” sagði Chris Hughton aðstoðarmaður Jol.
Ledley King er viss um að leikurinn verði erfiður: „Þeir eru ofarlega í deildinni og þetta verður án efa erfiður leikur. Þeir eru með frábæran liðsanda og það sést greinilega á árangri liðsins.”
Líklegt lið Spurs: Robinson, Stalteri, King, Naybet, Lee, Lennon, Mendes, Jenas, Davids, Mido, Defoe






