Ættum að vinna tvö eða þrjú núll

0
677

Martin Jol segir í dálk sínum á heimasíðu Tottenham að liðið hafi átt í vandræðum á síðasta þriðjungi vallarins. En hann segir einnig að það séu greinileg batamerki, en að liðið sé samt frekar taugóstyrkt þegar það nálgist mark andstæðinganna. En þrátt fyrir það er hann ánægður með sigurinn og þakkar áhorfendum á White Hart Lane fyrir góðan stuðning, en það er óhætt að segja að White Hart Lane sé einn af fáum völlum þar sem ávallt er uppselt á deildarleiki.

Jol bætti við: „Við reyndum að halda boltanum því að það er styrkur okkar en það tókst ekki í seinni hálfleik.”

„Það var gott að fá Edgar til baka og Mido líka eftir þriggja leikja fjarveru. Þrátt fyrir að Dawson og Gardner hafi ekki verið með kom Naynet inn – við erum heppnir að hafa leikreyndan mann eins og hann.”

„Pedro Mendes stóð sig líka vel í fjarveru Micheal Carrick, en í svona leik, eigum við að vinna 2-0 eða 3-0,” sagði Martin Jol um leikinn gegn Fulham.

DEILA
Fyrri fréttSpurs 1-0 Fulham
Næsta fréttCharlton – Spurs