Spurs 1-0 Fulham

0
706

Tottenham komust upp í 4.sæti deildarinnar eftir sigur á Fulham í kvöld á White Hart Lane. Jermain Defoe skoraði eina mark leiksins á 8. mínútu eftir langa sendingu frá Ledley King. Spurs gerðu margar breytingar á liðinu frá síðasta leik, Mendes, Davids, Lennon, Naybet og Mido komu allir inn í byrjunarliðið.

Spurs byrjuðu leikinn af krafti og skoruðu mark eftir 8 mínútna leik, þegar Ledley King gaf langa sendingu fram völlinn sem Jermain Defoe náði og setti boltann örugglega í hornið.

Eftir markið datt leikur liðsins niður og það var ekki fyrr en rétt fyrir hálfleik að liðið fór að spila flæðandi knattspyrnu sem leiddi til góðs marktækifæris fyrir Mido.

Síðari hálfleikurinn byrjaði eins og sá fyrri, leikmenn Spurs voru ákveðnir og sóttu hart að marki Fulham. En líkt og í undanförnum leikjum tókst liðinu ekki að halda spilinu gangandi og gerði það Fulham kleift að komast nær marki Spurs.

En þeim tókst ekki að skora og fór leikurinn 1-0. Aaron Lennon var besti maður Spurs í leiknum og var hann sífellt á hreyfingu upp og niður hægri kantinn. Jermaine Jenas var hins vegar afar slappur í þessum leik, missti boltann afar oft og gerði frekar lítið fram á við, en hann er kannski enn að aðlagast liðinu.

Lið Spurs: Robinson 7, Stalteri 6, King 7, Naybet 5, Lee 6, Lennon 8(Reid 71), Mendes 7, Jenas 4, Davids 7, Defoe 7(Keane 75), Mido 6(Rasiak 89). Varamenn: Cerny og Kelly