Davids nýtur sín hjá Spurs

0
695

Edgar Davids segist elska að spila undir þeirra pressu sem er í ensku úrvalsdeildinni. Eftir aðeins nokkra leiki með Tottenham hefur hann náð að festi sig í sessi sem miðpunktur liðsins, og hafa margir af ungu leikmönnum félagsins tekið vinnusemi hans sér til fyrirmyndar. Davids spilaði sinn besta leik til þessa fyrir Spurs á laugardaginn, en hann telur að staðan sem hann spilaði hafi gert honum kleift að gera sitt besta.

,,Ég hef spilað á vinstri kantinum áður og líka fyrir aftan sóknarmennina, en mér hefur alltaf liðið best á miðri miðjunni – ég er vanur því.”

 ,,Liðsandinn hérna er frábær og það er mjög mikilvægt. Þegar liðið er að spila vel, þá eigum við auðvelt með að vinna.”

 Edgar hefur, eftir góða byrjun með Spurs, náð að endurheimta sæti sitt í hollenska landsliðshópnum.

 ,,Ég var ekki í aðalliðinu hjá Inter og þess vegna var ég ekki valinn í hópinn. En nú er ég oftast í liðinu og mun það vonandi hjálpa mér að halda landsliðssætinu.”