Tottenham unnu góðan sigur á Everton um helgina, 2-0, með mörkum frá Mido og Jermaine Jenas. Mörkin komu bæði í seinni hálfleik og það er óhætt að segja að sigurinn hafi verið nokkuð öruggur, enda voru Everton ekki í sínu besta formi. Þrjár breytingar voru gerðar á byrjunarliðinu, Carrick, Dawson og Lee komu inn fyrir Mendes, Naybet og Kelly.
Fyrri hálfleikurinn var frekar jafn en þó áttu Spurs fleiri færi og þá helst Michael Dawson sem átti tvo góða skalla eftir hornspyrnur frá Carrick. Þá átti Lee einnig gott hlaup inn í teiginn og var jafnvel spurning hvort að vítaspyrna hefði átt að vera dæmd. Staðan var 0-0 í hléinu, en manni fannst að um leið og fyrsta markið kæmi myndu nokkur fylgja
Staðan var 0-0 í hléinu, en manni fannst að um leið og fyrsta markið kæmi myndu nokkur fylgja. Seinni hálfleikurinn byrjaði vel og var meiri ákveðni í leikmönnum liðsins en í þeim fyrri. Það skilaði marki eftir um 15. mínútna leik þegar Mido skallaði inn sendingu frá Jenas, en hann hafði spilað vel fram að því.
Jenas bætti síðan sjálfur við marki 5 mínútum síðar með góðum skalla eftir sendingu frá Defoe, og eftir það var sigurinn aldrei í hættu. Þetta var góður sigur fyrir Spurs en oft hefur það komið fyrir að þegar lið á í erfiðleikum er það Spurs sem er fyrsta liðið til að tapa fyrir þeim.
Martin Jol mun nú undirbúa leikmenn sína vel fyrir erfiðan leik gegn Man Utd á útivelli um helgina. Sigur þar myndi svo sannarlega veita leikmönnunum mikið sjálfstraust fyrir komandi leiki.
Lið Spurs: Robinson 8, Stalteri 7, Dawson 9, King 8, Lee 7, Lennon 7(Reid 72), Carrick 8, Jenas 7, Davids 7, Mido 8, Defoe 7 (Keane 79). Varamenn: Naybet, Kelly, Cerny






