Þann 11. október 1958 var fyrrum leikmaður og þáverandi þjálfari hjá Tottenham ráðinn framkvæmdastjóri. Seinna þann dag stýrði hann Tottenham í fyrsta skipti gegn Everton á WHL og hafði sigur 10-4. Eftir leikinn skammaði hann leikmenn fyrir lélegan varnarleik enda hafði liðið fengið á sig fjögur mörk. Þetta var enginn annar en Hr. Tottenham Bill Nicholson sjálfur sem varð ástsælasti og sigursælasti stjóri okkar til dagsins í dag. Vonandi heiðra leikmenn Tottenham minningu hans með góðum sigri á einmitt Everton á laugardag. Þess má geta að stór hópur félaga í Tottenhamklúbbnum verður á leiknum.
Nýjustu fréttirnar
Hópferð Tottenhamklúbbsins – Nóvember 2026 (UPPSELT)
Daginn Þá er komið að fyrstu hópferð Tottenhamklúbbsins á Íslandi tímabilið 2026-2027Farið verður á leik Tottenham - Ipswich sem verður á Tottenham Hotspur Stadium,...







