Routledge: Lennon búinn að spila vel

0
611

Wayne Routledge, sem hefur ekkert leikið með síðan í ágúst, hefur sagt að Aaron Lennon sé búinn að standa sig frábærlega í fjarveru sinni. Routledge er búinn að vera frá síðan upp komst um meiðsli hjá honum eftir fyrsta leik tímabilsins gegn Portsmouth. En hann er allur að koma til og losnaði nýverið við skó sem hann hefur þurft að vera í meðan að brotið var að gróa. Wayne var búinn að spila vel á undirbúningstímabilinu þannig að það voru honum mikil vonbrigði að meiðast strax eftir fyrsta leik.

„Þetta er búinn að vera pirrandi tími. Að koma til nýs félags og byrja vel en lenda síðan í meiðslum er ekki það besta. En ég er byrjaður að sjá ljósið í myrkrinu og vonandi mun þetta fara að koma.”

„Ég er byrjaður að mæta á hverjum degi á æfingasvæðið til venjast og ég get ekki beðið eftir því að geta sparkað í bolta á ný,” sagði Wayne Routledge.