Martin Jol vill að miðjumenn sínir fari að skora fleiri mörk, en Jermaine Jenas var fyrsti miðjumaðurinn til að skora á þessu tímabili um helgina. Ástandið var mjög slæmt á síðasta tímabili, þegar miðjumaður skoraði fyrst 1. janúar gegn Everton(Dean Marney) og var hann meira að segja markahæsti miðjumaður liðsins í fyrra með 2 mörk, bæði í umræddum leik gegn Everton.
Jol telur þessi aukamörk sem miðjumennirnir skora skipta miklu og gerir nú kröfur um fleiri mörk frá þeim.
„Við viljum vera mjög gott lið og vera meðal efstu liða, og til að það sé hægt þurfa miðjumenn að skora. Það er ákskorun því að við höfum ekki gert mikið af því, en við verðum að gera það í framtíðinni.”
Jol hefur einnig lofað Edgar Davids ákaft enda hafa áhrif hans á liðið verið mjög augljós.
„Í hvert skipti sem hann(Davids) spilar líður mér vel því að hann vinnur boltann oft og er sterkur andlega á vellinum. Það var kannski ekki okkar sterkasta hlið í fyrra, en við höfum bætt það mikið,” sagði Martin Jol um Edgar Davids.






