Fyrr í mánuðinum hittust fulltrúar stuðningsmanna Tottenham Hotspur (Tottenham Hotspur Supporters Trust – THST) og fulltrúar stjórnar félagsins. Tilefni fundarins var regluleg umræða um málefni félaginu viðkomandi. Margt fróðlegt kom fram á fundinum, og birtast hér nokkrir áhugaverðir molar sem þar var greint frá. Meðal þess sem rætt var um voru leikmannakaup, staðan í fjármálum og málefni White Hart Lane.
Daniel Levy, stjórnarformaður THFC, upplýsti fundarmenn um að félagið væri engu nær því að fá lausn á vallarmálum sínum. Hlutirnir hafa gerst hægt, og munu gerast enn hægar nú þegar London undirbýr sig af kappi fyrir Ólympíuleikana 2012. Breytingar á vellinum, þar sem hann er í dag, eru dýrar og ekki virðist líklegt að í þær verði ráðist á næstunni. Levy bætti því þó við að öll tilboð frá eigendum stórra leikvanga verði skoðuð.
– Félagið hefur sótt um leyfi til að koma sér upp nýju og fullkomnu æfingasvæði í Enfield. Þau mál eru öll á frumstigi.
– Rúmri milljón punda var veitt í endurbætur á White Hart Lane í sumar. Meðal þess sem tekið var í gegn er búningsherbergi Tottenham, breytingar á göngunum út á völlinn og endurbætur á 33 "boxum".
Margt athyglisvert kom fram í sambandi við kaup og sölur á leikmönnum.
– Stjórnin var spurð að því, hvers vegna verð á leikmönnum væri svo oft óuppgefið. Levy svaraði því til að í 99% tilfella færi seljandinn fram á að upphæðin yrði ekki gefin upp. Í tilfelli Jermaine Jenas (sem kostaði 7m punda) var nauðsynlegt að gefa upp kaupverð, þar sem það náði vissu hlutfalli af markaðsvirði félagsins.
– Upphæðin sem félagið fékk fyrir Frank Arnesen kemur fram í næsta ársuppgjöri, en þó ekki ein og sér, heldur undir liðnum "Kaup og sala starfsmanna". Áhugamenn munu því þurfa að geta sér til um upphæðina áfram.
– Levy tók það fram að félagið væri í góðri aðstöðu til að kaupa leikmenn, og að það væri stefna félagsins að kaupa hæfileikamenn, þegar þeir bjóðast á góðu verði. Hann tók sem dæmi Jermain Defoe, sem var keyptur þegar okkur vantaði eiginlega menn í flestar stöður nema framherja. (Það má spyrja sig hvort að það sama hafi gilt um kaupin á Jermaine Jenas í sumar, en þær sögur hafa heyrst að Levy hafi verið meira spenntur fyrir honum en Jol.) 
– Samningur Robbie Keane rennur út eftir tímabilið 2007-2008.
– Innan THFC starfar "fótboltanefnd" sem veltir vöngum yfir hugsanlegum leikmannakaupum og sölum. Þessi nefnd samanstendur af þeim Daniel Levy, John Alexander, Damien Comolli og Martin Jol.
– Spurður að því hvers vegna Fredi Kanoute hafi verið seldur, svaraði Levy því að þeim hjá Tottenham hafi einfaldlega þótt það góður díll að fá 5m punda fyrir 28 ára sóknarmann. Hann hefði þar að auki ekki unað sér vel á bekknum, ef að líkum lætur. Þegar Kanoute var seldur voru THFC að skoða Kuyt og ítalskan sóknarmann.
– Kaupin á Rasiak voru ákveðin á síðustu stundu.
– Enn hefur ekki verið rætt við Roma um kaup á Mido, en félögunum er leyfilegt að ræða um þau, þó félagaskiptaglugginn sé lokaður. Levy bætti því við að það félag sem fær leikmann að láni þurfi að greiða að minnsta kosti helming launa hans.
– En það var fleira rætt en leikmannakaup. THFC mun kynna hugmynd að nýju einkennismerki á næsta ári. Þetta merki var sýnt fulltrúum THST, sem voru víst mjög hrifnir.
– Kvartað var yfir nýju treyjunni, en því svarað að hún hafi selst best allra Kappa treyjanna.
– Nýr búningsframleiðandi verður kynntur á næsta ári, en ekki var hægt að gefa upp að svo stöddu hver það er.
– Ný heimasíða fer í loftið í nóvember, ef allt fer samkvæmt áætlun.
– Orðrómi þess efnis að Levy hafi tjáð Jol að hann þyrfti að sýna árangur sem fyrst, var alfarið hafnað. 
– Áform eru uppi um að spila leik til minningar um Bill Nicholson. Ágóðinn af þeim leik rennur til góðgerðarmála. Enn á eftir að velja dagsetningu og mótherja. Stungið var upp á því að leika gegn Atletico Madrid, en þeim mættu Tottenham í úrslitum Evrópukeppni bikarhafa árið 1963. (Þann leik vann Tottenham 5-1, og varð fyrsta enska liðið til að vinna Evrópukeppni.) Þeirri hugmynd var vel tekið.
Heimasíðu THST má nálgast hér, en þar er meðal annars hægt að lesa fundargerðina í heild sinni.






