Hinn efnilegi Tom Huddlestone hefur verið lánaður til Wolves í einn mánuð. Þar mun landsliðsmaðurinn ungi, sem getur leikið bæði í vörn og á miðju, hitta fyrir Glenn Hoddle, fyrrverandi leikmann og knattspyrnustjóra Tottenham.
Huddlestone, sem var keyptur í sumar á 2.5 milljónir punda, hefur engin tækifæri fengið með aðalliðinu í vetur. "Hann er ungur og hæfileikaríkur leikmaður, og geysilegt efni, en það er mikilvægt að hann fái að spila leiki og komi sér þannig í leikform", sagði Martin Jol. Hjá Tottenham eru, eins og allir vita, fjölmargir miðjumenn og varnarmenn fyrir, og því erfitt fyrir ungan leikmann eins og Huddlestone að brjóta sér leið inn í liðið.
Það er ekki ólíklegt að hann gangi beint inn í byrjunarliðið á Molineux, en þessi 18 ára leikmaður var einmitt í úrvalsliði Championship deildarinnar í fyrra. Við óskum honum að sjálfsögðu góðs gengis.
Þess má einnig geta að Mounir El Hamdaoui hefur snúið aftur úr láni frá Derby, en hann varð fyrir axlarmeiðslum. Talið er að hann verði frá í nokkrar vikur.






