Jol sáttur við seinni hálfleikinn

0
689

Martin Jol var mjög glaður með hvernig leikmönnunum tókst að ná stigi á Old Trafford í gær. Man U voru betri í fyrri hálfleik en leikur Spurs í þeim síðari verðskuldaði a.m.k. jafntefli. Eftir jöfnunarmark Jermaine Jenas voru Spurs meira að segja líklegri til að sigra og áttu þeir nokkrar skyndisóknir sem þeim tókst samt ekki að nýta.

„Við vorum 100% betri í seinni hálfleik. Við vorum ekki nálægt okkar besta í fyrri hálfleik, 2-3 leikmenn spiluðu illa, og maður verður að gera meira ef maður vill ná úrslitum á Old Trafford.”

„Við gáfum þeim of mikið pláss á köntunum, sérstaklega vinstra megin, og það leiddi til marksins þeirra. Ég held að mistökin hans Robbo hafi ekki verið slæm vegna þess að boltinn skaust af jörðinni í hann var óheppinn.”

DEILA
Fyrri fréttGott stig á útivelli
Næsta fréttHuddlestone í lán