Leikur Tottenham og Man Utd í dag fór 1-1, og var það Jermaine Jenas sem skoraði mark Spurs í seinni hálfleik. Martin Jol stillti upp sama liði og í síðasta leik enda engin ástæða til að gera breytingar. Það má segja að leikmenn Man U hafi byrjað leikinn betur og verið sterkara liðíð í fyrri hálfleik en sá síðari var allt öðruvísi og voru það leikmenn Spurs sem voru mun meira með boltann. Man U skoruðu mark strax í byrjun eftir að Paul Robinson missti boltann frá sér eftir skalla.
Þetta eru í raun einu mistök(ef mistök má kalla) sem Robinson hefur gert síðan hann kom til félagsins. Hann bætti hins vegar upp fyrir mistök sín með því að standa sig vel það sem eftir var af leiknum.
Þrátt fyrir að vera 1-0 undir hófu leikmenn Spurs síðari hálfleikinn með miklum krafti og héldu upp góðum sóknarþunga fyrstu 10 mínútur hálfleiksins. Þeim tókst samt ekki að breyta pressunni í mark.
Það var mikil breyting á leik Spurs og var það sérstaklega baráttuandinn sem maður tók eftir, en slíkur kraftur hefur verið afar sjaldséður á undanförnum árum hjá Spurs. Jöfnunarmarkið kom rúmum 20 mínútum fyrir leikslok.
Brotið var á Jermain Defoe 20 metra frá marki og skoraði Jermaine Jenas stórglæsilegt mark úr aukaspyrnunni, en svona mark úr aukaspynru hefur ekki sést hjá Spurs síðan Christian Ziege var í liðinu!
Markið hleypti auknu lífi í leik Spurs og áttu þeir nokkrar skyndisóknir það sem eftir lifði leiks, en þeim tókst ekki að skora sigurmarkið. Jafnteflið er í raun sanngjörn úrslit þar sem Man U áttu fyrri hálfleikinn og Spurs þann seinni. Miðja Spurs áttu mjög góðan leik í dag sem og þeir King og Dawson sem eru búni rað mynda virkilega öruggt par í vörninni.
Edgar Davids fékk 5. gula spjaldið sitt í leiknum og missir þ.a.l. af grannaslagnum gegn Arsenal um næstu helgi en framlag hans í dag var, eins og ávallt, framúrskarandi.
Lið Tottenham: Robinson 7, Stalteri 6, Dawson 8, King 8, Lee 6, Lennon 6 (Keane 65), Carrick 8, Jenas 9, Davids 8, Mido 8, Defoe 7 (Pedro Mendes 84). Varamenn: Naybet, Kelly og Cerny.






