Viðtal við Paul Robinson 4. hluti

0
607

Þá er komið að fjórða hluta viðtalsins við Paul Robinson. Í þessum hluta ræðir hann um keppnisskapið, besta völl sem hann hefur leikið á, samband sitt við Chirpy og hvaða leikmann Spurs hann gæti helst hugsað sér að sjá í hringnum með Roy Keane. Fimmti og síðasti hluti viðtalsins birtist síðan á morgun.


Þú lést þó ekki eins og Ian Walker og hlóst að því!
Ohh, ég er tapsárasti maður heimsins, sama hverju ég er að keppa í. Ég má ekki tapa í neinu. Þegar ég er í fríi með konunni, að spila tennis við hana, þá get ég gefið á milli í 10 mínútur, en svo verð ég að vinna hana! Ég get ekki leyft neinum að vinna mig í neinu, það er tilgangslaust að keppa ef þú ætlar ekki að vinna.

Hvert er eftirminnilegasta augnablik þitt á White Hart Lane hingað til? Í heildina hefur dvölin verið frábær lífsreynsla fyrir mig. Sennilega var það þó þegar ég var meiddur og kom inn á völlinn til að taka á móti viðurkenningunni fyrir að vera leikmaður ársins. Fyrir og eftir leikinn var ég haltrandi um völlinn og með dóttur mína með mér, það var mjög sérstakt augnablik.

Markmenn eru þekktir sem svolitlir sérvitringar. Hegðar þú þér á einhvern sérstakan hátt sem hinir leikmennirnir segja að einkenni þig sem markmann? Markmenn eru sannarlega öðruvísi, við erum markmenn, við erum ekki knattspyrnumenn. Við erum allir öðruvísi. Líttu á daginn í dag, það er mígandi rigning en við erum úti að fleygja okkur fram og til baka í henni. Við erum sannarlega öðruvísi á fleiri vegu en eina.

Með hverjum ertu í herbergi á ferðalögum, og hverjir eru verstu ávanar hans?
Við höfum ekki herbergisfélaga, við erum með eigin herbergi, sem er frekar gott. Hver hefur sína eigin rútínu, menn fara að sofa, horfa á sjónvarpið, fara í sturtu eða raka sig á ólíkum tímum, þannig að við höfum svigrúm fyrir það. Það er frekar gott.

Fylgistu með öðrum íþróttum?
Já, ég hef gaman af íþróttum. Ég spila mikið golf. Ég fylgist með rugby líka, þegar það er í sjónvarpinu, og svo náttúrulega knattspyrnu á öllum stigum. Ég horfi á hvaða íþrótt sem er í sjónvarpinu.

Fylgistu alltaf með úrslitum leikja Leeds?
Já, ég fylgist alltaf með úrslitum Leeds, og Hull City líka

Hull City?
Já, því ég er frá Beverley, sem er nálægt Hull. Hull eru byrjaður að klifra upp deildina þannig að ég fylgist með úrslitum þeirra, og augljóslega Leeds því þar var ég svo lengi.

Hvað finnst þér og liðsfélögum þínum um aðdáendur sem baula á leikmenn félagsins sem þeir styðja?
Það er erfitt að segja, allir eiga rétt á sínum skoðunum. Þú borgar fyrir að fara á völlinn, og allir eiga rétt á sínum skoðunum, en þegar hlutirnir eru ekki að ganga upp inni á vellinum, þá er það ekki viljandi og það síðasta sem leikmennirnir þurfa er að fólk fari að láta þá heyra það. Fólk hefur að sjálfsögðu rétt á að láta í sér heyra, en það hjálpar engum ef þeir baula.

En nú er fullt af fólki sem baular á einstaklinga.
Sem einstaklingur, og þér gengur ekki sem best og það fer að gerast [að áhorfendur bauli], þá hrynur sjálfstraustið enn frekar. Þetta er ekki ákjósanlegt, og ég held að það eigi ekki heima í leiknum.

Dean Richards átti í veikindum síðar meir, en hann var eyðilagður með bauli áhorfendanna.
Það var fyrir minn tíma, en ef þið byrjið að baula á þá… Þú veist, þið eruð stuðningsmenn liðsins og viljið að liðinu gangi vel, óháð því hverjir eiga í hlut þá ættuð þið að styðja liðið. Menn ættu ekki að láta einstaka leikmenn heyra það, því það hagnast liðinu á engan hátt.

Hver er besti völlurinn sem þú hefur spilað á, og hvers vegna?
Erm.. San Siro held ég, sem fótboltavöllur, því ég hef spilað á mörgum stöðum eins og t.d. Ólympíuleikvanginum og það er alvöru Ólympíuleikvangur – áhorfendurnir eru skildir að frá vellinum með hlaupabraut, en á San Siro eru þeir alveg upp við völlinn, og það er eins og stúkurnar rísi beint upp. Það að allir virðast vera fyrir ofan þig, og með 80-90 þúsund manns, gerir það magnað.

Hver er mesti keppnismaðurinn hjá Spurs?
Ég, án nokkurs vafa!

Hvers vegna slóstu Chirpy [lukkudýr Spurs] ?
Ég geri það alltaf! Ég á í ástar-/haturssambandi við Chirpy, alltaf þegar ég sé hann í göngunum lem ég hann eða slæ hann með einhverju – Sé hversu oft ég get snúið hausnum á honum í hring.

Áttu þér uppáhaldshluta af White Hart Lane?
Já, Park Lane endinn. Það er reyndar erfitt að segja því allir aðdáendurnir eru frábærir, en það er eitthvað sérstakt. Allur leikvangurinn er frábær og allir stuðningsmennirnir eru frábærir en ég hlakka mikið til að spila fyrir framan Park Lane í seinni hálfleik – ég vona bara að ég hafi haldið hreinu!

Hvað hefurðu í hyggju eftir að þú hengir upp hanskana?
Það er nokkuð sem ég hef ekki hugsað út í í smáatriðum. Ég vil vera viðriðinn fótboltann, ég vil gera eitthvað innan leiksins því ég held að það sem ég hef lært og afrekað hingað til, og ég er aðeins 26 ára og á eftir að læra margt og afreka, geti ég kennt öðru fólki. Mér líst ekkert á hið daglega stress sem fylgir því að vera knattspyrnustjóri, eða nokkuð annað en þjálfari, markmannsþjálfari, því maður tengist markmannsþjálfaranum sérstökum böndum. Ég hef áhuga á að vera markmannsþjálfari, en kannski ekki á öllum ferðalögunum.

Spyrnurnar þínar virðast vera talsvert betri en hjá flestum markvörðum. Hvernig ferðu að því að sparka boltanum svo langt?
Þetta er bara eitthvað sem ég hef alltaf getað gert. Við fluttum á æfingasvæðið hjá Leeds þegar við vorum 16 ára. Við vorum fyrsti hópur lærlinga sem bjuggu á æfingasvæðinu. Æfingasvæðið var úti í rassgati, og á eftirmiðdaginn stóð valið á milli þess að fara út og sparka í bolta, taka strætó inn í bæ eða bara sitja inni í herbergi og horfa á sjónvarpið. Þannig að ég kenndi mér þetta sjálfur með því hreinlega að sparka fullt af boltum.

Þegar þú sparkar virðistu vera að draga svolítið úr spyrnunni?
Já, síðustu vikurnar hef ég reynt að láta hann detta aðeins betur fyrir Mido, þannig að ef hann nær að "flikka" honum er meira pláss fyrir aftan hann sem boltinn getur lent í. Vanalega reyni ég að miða á fólk fremur en bomba honum bara fram völlinn.

Hver ungu leikmannanna, sem við höfum kannski ekki séð mikið til, heldurðu að hafi möguleika á að verða toppleikmaður í Ensku úrvalsdeildinni?
Aaron Lennon. Þið hafið séð svolítið til hans, en hann á svo rosalega mikið inni, og hann er bara strákur. Hann á eftir að stækka og þroskast, en hann verður gríðarlega hæfileikaríkur þegar hann verður 23ja-24ra ára.

Hann eyddi heilmiklum tíma með Davids eftir æfingu í dag.
Já, Aaron nýtur þess, þú nærð honum ekkert af æfingasvæðinu. Hann er einhleypur og hans bíður ekkert heima fyrir, þannig að hann eyðir öllum sínum tíma á vellinum.

Hvaða leikmann Spurs gætirðu hugsað þér að setja í boxhringinn með Roy Keane, fyrir utan sjálfan þig?
Erm… Hver myndi slást við Roy Keane?….. Hjálpaðu mér (hann spyr fjölmiðlafulltrúa frá Spurs sem svarar því til að hann myndi setja Robinson í hringinn, en það má víst ekki). Já ég get ekki valið sjálfan mig.

Ég hefði ekkert á móti því að sjá Pamarot gegn honum.
Já, Noe, já ég gæti hugsað mér hann gegn honum. Já, þetta er góð uppástunga, ég hafði gleymt Noe. Noe myndi bara sparka í hann með kálfunum!!