Viðtal við Paul Robinson 3. hluti

0
591

Hér kemur þriðji hlutinn af viðtalinu við landsliðsmarkvörð Englendinga, Paul Robinson. Í þessum hluta viðtalsins ræðir hann m.a. um hver sé besta markvarslan sín og hver sé skotfastasti leikmaður Spurs.

Í upphituninni fyrir leikinn gegn Newcastle í FA Cup gafstu Newcastle aðdáenda hanskana þína eftir að hann fékk bolta í sig. Svoleiðis framkoma gagnvart aðdáendum virðist ekki vera algeng nú til dags. Af hverju heldurðu að svo sé?
Ég veit það ekki, ég er bara þannig persóna. Ég geri mig bara ekki merkilegan fyrir framan fólk. Það var ungur strákur fyrir aftan markið og Hans(Segers) skaut boltanum framhjá og hann fór óvart í andlitið á honum. Hann var með gleraugu, og fékk skurð á andlitið og leið illa. Hann var grátandi og pabbi hans var með honum þannig að ég lét hann bara hafa hanskana mína, sem nokkurs konar minjagrip. Vonandi gladdi það hann örlítið.

Hvað finnst þér um nýju leikmennina í hópnum?
Allir sem hafa komið hafa verið góð viðbót við hópinn. Allir eru búnir að passa vel inn og við erum með frábæran hóp. Ef það eru 2-3 menn meiddir þá getum við sett 2-3 leikmenn af sömu getu inn í liðið, sem er frábær bónus að hafa í augnablikinu og ég held að allir leikmennirnir í hópnum í augnablikinu séu hágæðamenn.

Hafðirðu einhverja hugmynd um hvernig leikmaður Aaron Lennon myndi verða þegar þið voruð hjá Leeds?
Ó já, án efa. Hraðinn hans, hann er svo snöggur, og hann er frábær viðbót við hópinn hjá okkur. Ég vissi hvað hann gæti gert. Hann var ekki í hópnum í upphafi tímabilsins, en eftir að hann fékk tækifæri hefur hann sýnt þjálfaranum hvað í honum býr – hann er frábær leikmaður.

Hefurðu alltaf verið markmaður eða varðstu það fyrir slysni?
Ég hef alltaf verið markmaður síðan ég var 7 eða 8 ára en það kom til í raun fyrir slysni. Ég fór á æfingu með liði þar sem ég bjó og allir voru spurðir: “Hver vill vera í marki?” Ég sagðist vilja það í 5 mínútur en það festist bara við mig. Síðan þá hefur maður bara haldið sig við það sem maður er góður í!

Hvaða útileikmaður hjá Spurs myndi vera góður “neyðarmarkvörður”?
Úff, það eru nokkrir sem telja sig vera ágæta markmenn!! Þegar maður fær á sig mark á æfingu halda nokkrir þeirra án efa að þeir séu bestu markverðir í heimi! Hvern myndi ég setja í mark?…. Keano er ekki slæmur, hann er ekki slæmur í marki, ætli það yrði ekki hann.

Hversu mikið er Cerny að þrýsta á þig varðandi sætið í liðinu?
Radek er góður markvörður, hann er mjög góður markvörður. Hann er landsliðsmaður sem hefur sannað sig, hann spilaði í hverri viku fyrir Slavia Prague. Hann er góður atvinnumaður og ef ég stend mig ekki er hann tilbúinn að taka stöðuna mína.

Hvaða leikmaður Spurs er skotfastastur á æfingum?
Hver getur hitt boltann? Þeir verða að hitta markið fyrst!! Mido…Mido. Mido er skotfastur, en hann hefur engan klassa yfir skotunum sínum, hann neglir bara alla bolta.

Hver er fyndnasti leikmaður Spurs, fyrir utan Naybet og fötin hans?
Fötin hans Naybet eru þau verstu! Þú hefur greinilega tekið eftir því. Hann á þessi kúrekastígvél í búningklefanum, ég var meira að segja að setja þau þar sem allir sjá þau. Þau eru viðbjóðsleg get ég sagt þér. Hann hefur versta smekk sem ég veit um.

En hver er mesti grínistinn eða jókerinn?
Það eru nokkrir, það er engin einn sem ég gæti valið. Það er alltaf eitthvað í gangi í klefanum. Mér er kennt um mjög margt sem er gert, þannig að það er um að gera að taka þátt í þessu. En við erum með ungan hóp þannig að það eru allir að gantast í hver öðrum.

Fara leikmennirnir eitthvað saman út að borða eða að skemmta sér og hver er mesti stuðboltinn?
Við hittumst stundum saman en þá bara með konunum og kærustunum því að margir okkar eiga lítil börn. Það er liðin tíð að fara á fyllirí eftir leik á laugardegi eða í miðri viku. Við verðum að vera skynsamir varðandi þessa hluti. Mér finnst persónulega best að fara út að borða í rólegheitum og fá sér nokkra drykki. En það eru ekki margir sem fara út þessa dagana því að maður getur það ekki nú til dags.

Hver er besta markvarslan þín?
Það eru tvær sem koma upp í hugann. Augljóslega markvarslan úr England – Wales leiknum um daginn og svo er önnur sem ég átti í Meistaradeildinni gegn Barcelona á Elland Road fyrir Leeds. Það kom sending fyrir og hann skallaði boltann þvert fyrir markið frá fjærstönginni í fjærhornið, og mér tókst rétt svo komast til baka og ýta boltanum yfir slánna.

Hvað er það vandræðalegasta sem hefur komið fyrir þig sem markvörður?
Fyrir nokkrum árum hjá Leeds þegar við vorum á Anfield, missti ég boltann í gegnum hendurnar á mér. Það eru væntanlega verstu mistök mín hingað til, og þetta er eftir leikinn gegn Man Utd!!