Þá er komið að öðrum hluta viðtalsins við Paul Robinson. Í þessum hluta viðtalsins ræðir hann um komu sína til Tottenham, átrúnaðargoð sitt frá yngri árum, möguleika Englendinga á heimsmeistaramótinu á næsta ári og sitthvað fleira.
Hvernig var að laga sig að nýju félagi eftir að hafa verið svona lengi hjá Leeds?
Það var gott. Ég hélt það yrði erfitt í fyrstu því eins og ég segi, ég hafði verið hjá Leeds allan minn feril, síðan ég var fjórtán ára. Þetta var stór breyting fyrir mig, en þetta var breyting sem ég þurfti að gera ferilsins vegna, og þar að auki urðu Leeds náttúrulega að selja mig. Ég talaði við Tottenham í janúarglugganum en úr því varð ekkert, því þeir ætluðu að lána mig aftur til Leeds til loka þess tímabils, en Leeds var með of marga leikmenn á láni þannig að við biðum með þetta til loka tímabilsins. Það var ekkert frágengið eða undirritað um að ég kæmi niður eftir [til Tottenham] – það mátti augljóslega ekki, en um leið og tímabilinu lauk sýndu Tottenham mér áhuga og ég þurfti ekki einu sinni að taka ákvörðun, hana hafði ég þegar tekið og þetta var liðið sem ég vildi fara til.
Eyddirðu ekki annars viku hjá Arsenal?
Nei, ég fór aldrei þangað. Það var sagt frá því í blöðunum að ég hefði farið þangað og Arsene Wenger sagði að ég hefði getað farið til Arsenal, en ég hef aldrei hitt þá, aldrei farið til þeirra né talað við neinn þaðan. Eftir að hafa verið hér myndi ég náttúrulega aldrei fara þangað.
Þú varst bestu 2 milljónir sem við höfum eytt.
Það var ekki einu sinni svo mikið, held ég, ekki enn allavega. Það gæti hækkað með spiluðum leikjum, en ég held það hafi ekki verið svo mikið.
Lest þú, eða einhver leikmanna Spurs, heimasíður um liðið? Ef svo er, hverjar þá?
Satt best að segja veit ég það ekki. Ég get bara svarað fyrir sjálfan mig.. Nei ég geri það ekki – Meinarðu á internetinu? Nei, ég er ekki mikill tölvukall og veit hreinlega ekki hvort restin af strákunum er það heldur. Hvers vegna, er mikið skrifað illa um okkur? Persónulega skoða ég þær ekki, en ég vissi ekki að svona lagað væri til. Ég verð greinilega að kíkja!
Hverjar voru þínar markmannshetjur á uppvaxtarárunum? Mótaðir þú þinn leik eftir einhverjum ákveðnum einstaklingi?
Neville Southall var alltaf hetjan mín þegar ég var yngri. Ég hef verið það heppinn að fá að hitta hann nokkrum sinnum eftir að hann hætti að spila. Ég er mikill aðdáandi leiks hans í heild, og án þess að vilja sýna Wales vanvirðingu, þá held ég að ef hann hefði leikið fyrir England hefði hann verið þekktur sem einn besti markmaður heimsins.
Hreinskilnislega, hversu vel heldurðu að Englendingum komi til með að ganga á HM? Ef Englendingar vinna ekki, hverjir þá?
Ef við spilum vel, þá held ég satt best að segja að við getum unnið mótið. Við höfum sýnt slangur af kæruleysislegum frammistöðum og úrslitum eftir því, en pressan var farin af okkur gegn Póllandi og þið sáuð frammistöðuna þar og hversu vel við spiluðum, þrátt fyrir að sakna margra leikmanna. Ef allir halda sér heilum og allir spila eins vel og þeir geta, sé ég enga ástæðu fyrir því að við ættum ekki að geta unnið. En ef við vinnum ekki verða það náttúrulega þessi venjulegu topplið – Brazilía og lið eins og Argentina – sem hafa alla burði til að vinna.
Eru hinir landsliðsmennirnir öruggir um að þeir geti unnið HM?
Já, algjörlega. Við verðum að mæta til leiks öruggir um að geta unnið. Við eigum tvo stóra leiki fyrir HM, tvo vináttuleiki, leikinn gegn Argentínu í næstu viku, þannig að við munum fá leiki þar sem við getum reynt okkur áður en við förum á heimsmeistaramótið.
Miðað við núverandi aldur hópsins [hjá Tottenham], finnst þér þú vera gamall?
Já, reyndar. Ég varð 26 ára í síðustu viku þegar þið sunguð afmælissönginn fyrir mig [í leiknum gegn Everton] – sem var frábært. En miðað við aldur hópsins finnst er mér farið að líða eins og hálfgerðu gamalmenni, 26 ára gömlum.
Þú spilaðir mjög ungur í Meistaradeild Evrópu. Tókst þér að meðtaka það allt saman, og gerir það þig ákveðnari en ella í að komast þangað aftur?
Já, án nokkurs vafa. Meistaradeildarbolti, og Evrópubolti, er mjög sérstakur og að spila á völlum á borð við San Siro. Við gerðum jafntefli við AC Milan og tryggðum okkur þannig sæti í annarri umferð, fórum síðan til Rómar og lögðum Lazio 1-0. Evrópukvöld eru frábær kvöld, minningar sem lifa að eilífu og stemningin er öll önnur á slíkum kvöldum. Ég vil ekkert frekar en að fá slík kvöld á White Hart Lane, því þó laugardagar séu sérstakir þá er andrúmsloftið öðruvísi á Evrópukvöldum. Þriðjudagar eða miðvikudagar í meistaradeildinni eða UEFA bikarnum væru frábærir.
Hver er besti vinur þinn í fótboltanum, og hjá Spurs?
Hjá Spurs held ég að það væri ósanngjarnt að velja einhvern einn út, en ég ólst upp með Ian Harte hjá Leeds. Hann spilar nú hjá Levante, í Valencia, en við ólumst upp saman, eyddum miklum tíma saman og höldum enn góðu sambandi í dag. Eiginkonur okkar eru góðar vinkonur að auki.
Þú átt í sérstöku sambandi við stuðningsmenn okkar, og þú virðist njóta virðingar annarra stuðningsmanna að auki. Eru einhverjir sérstakir stuðningsmenn sem gera þér lífið sérstaklega leitt?
Ég er í þeirri heppilegu aðstöðu að vera landsliðsmarkvörður Englands, þannig að ég nýt víðast hvar svolítillar virðingar. Augljóslega ekki á Highbury, en maður á náttúrulega von á því og það væri í raun skrítið ef svo væri ekki. En flestir staðir eru mjög góðir, stuðningsmenn Portsmouth eru frábærir. Þeir eru allir harðir stuðningsmenn Englands og veita mér frábærar viðtökur í hvert skipti sem ég fer þangað.






