Nú er komið að fimmta og jafnframt síðasta hlutanum af viðtalinu við Paul Robinson. Í þessum hluta viðtalsins talar hann t.d. um hvernig dæmigerður leikdagur sé hjá sér og hvað sé besta mark sem hann hefur séð.
Hefurðu einhvern tímann orðið agndofa þegar þú hefur hitt einhvern núverandi eða fyrrverandi fótboltamann?
Já, þegar ég hitti Neville Southall. Neville er hetjan mín og ég var heppinn að þegar ég kom til Spurs og blaðamannafundurinn var haldinn á vellinum var hann þar, því að vinnur með börnum sem eiga við hegðunarvandamál að stríða, með þau í skoðunarferð um völlinn. Það var í fyrsta skipti sem ég hitti hann, en ég hef hitt hann tvisvar síðan þá. Þetta fullkomnaði daginn, koma til nýs félags og hitta Neville Southall.
Heldurðu að peningar Chelsea séu góðir eða slæmir fyrir fótboltann?
Ég held að þeir séu góðir fyrir Chelsea og slæmir fyrir alla aðra. Þeim gengur svo vel, þegar þú lítur á leikmannahópinn þeirra kemur það ekki á óvart. Þeir vilja þá bestu og þeir kaupa þá bestu. Þetta er gott fyrir Chelsea og aðdáendur þeirra en allir aðrir í deildinni eru bara að spila sín á milli.
Njóstu þess í laumi að skjóta boltanum í hausinn á Fabregas í fyrra – þótt að það hafi verið óvart, að sjálfsögðu?
Ó já, þetta var augljóst slys, þetta var hræðilegt. Ég myndi aldrei reyna að gera neitt líkt þessu…..Ég sagði þér að ég veldi alltaf mína menn!!
Frá sjónarhóli markvarðar, hvað fannst þér um markið sem aldrei var á Old Trafford í fyrra?
Roy Carroll tókst að hylma yfir þetta mjög vel, en fyrir okkur að fara þangað og ná 2 jafnteflum í síðustu tveimur leikjum sýnir hversu mikið okkur hefur farið fram – við hefðum kannski átt að sigra báða leikina. Reyndar, við áttum að vinna leikinn þegar Mendes skoraði.
Spurs hafa farið þangað(Old Trafford) undanfarin ár og vitað að þeir yrðu gjörsigraðir.
Viðhorfið er að breytast, það er trú meðal leikmannanna að auki. Áður fyrr, þegar maður fór á velli eins og Old Trafford og Highbury, var maður að hugsa um að takmarka skaðann. Þú segir það ekki, en meðal okkar er raunveruleg tilfinning um að við getum náð einhverju úr þessum leikjum.
Hver er áætlun þín þegar þú þarft að verjast vítaspyrnum, fylgist þú með vítaspyrnum annarra liða?
Já, við erum með lista yfir vítaspyrnumenn annarra liða. Ég og Hans(Segers) höldum skrá yfir hvert allar vítaspyrnur fara, þannig að áður en ég fer út á völlinn veit ég yfirleitt hvert ég ætla og hver mun taka spyrnuna.
Besta mark sem þú hefur séð?
Markið sem Tony Yeboah skoraði fyrir Leeds á móti Liverpool fyrir nokkrum árum. Það var mánudagsleikur og ég var boltasækir! Hann hitti boltann og hann flaug yfir Jamo, fór í slánna og inn. En auðvitað fyrir aftan markið sem ég skoraði gegn Swindon fyrir nokkrum árum!!
Hver er versta minning þín af því að leika með Spurs?
Að meiðast gegn Aston Villa. Augljóslega hnémeiðslin, en að átti sig ekki á því og spila í 5 mínútur án þess að hafa liðbönd.
Hvernig hefur það að leika með Spurs bætt spilamennsku þína?
Þetta er bara búinn að vera tilbreyting, því að ég var búinn að vera hjá Leeds síðan ég var 14 ára og kannski var ég farinn að staðna þar. Ég vissi að ég ætti helling inni og mér langaði persónulega að takast á við nýtt verkefni. Það var bara umhverfisbreytingin sem hefur fleytt mér áfram.
Hvaða tónlist hlusta leikmennirnir á fyrir leiki?
Michael Carrick er með iPodinn sinn, það er fjölbreytt tónlist á honum. Usher, Michael Jackson, alls konar tónlist.
Hversu aðlaðandi voru Spurs þegar þú varst að ákveða framtíð þína?
Þeir voru mjög aðlaðandi. Stjórnarformaðurinn seldi mér félagið, hann sagði mér hver markmiðin hans voru, hverjar vonir hans væru og hvað hann vildi gera með félagið. Hann hefur staðið við það sem hann sagði mér, þótt að það hafi orðið nokkur óhöpp með Santini og Arnesen, en félagið hefur yfirleitt haldið ótrautt áfram og er á leiðinni þangað sem stjórnarformaðurinn vill vera.
Hvernig eru ræðurnar hans Martin Jol?
A) Harðar en sanngjarnar?
B) Mjúkar og blíðar
C) Snælduvitlausar
A og C!!
Hefur Martin Jol eitthvað gælunafn meðal leikmannanna?
Já, en ég ætla ekki að segja þér það!!!
Hvaða leikmaður hermir best eftir Jol?
Keano, eða Sean Davis. Það eru nokkrir!
Veistu hvað bræður Martin Jol heita?
…..Robert?….Nei, það er frændi hans er það ekki……COCK AND DICK! Hann sagði okkur það ef mig minnir, það var í einhverri af snælduvitlausu ræðunum hans. Við héldum að hann væri að djóka í okkur, en bræður hans heita Cock og Dick.
Við Spurs aðdáendurnir erum taldir vera hviklyndir. Eftir að hafa verið á öllum útileikjum í fyrra og séð hversu vel við styðjum við liðið, heldurðu að við fáum slæma umfjöllun í blöðunum?
Mín reynsla er sú að Spurs aðdaéndurnir séu alls ekki hviklyndir. Fyrsti leikurinn sem ég spilaði hérna var leikur gegn Cagliari fyrir tveimur árum, hlutirnir gengu ekki alveg upp og það púuðu nokkrir og ég hugsaði: "Hvað er í gangi hérna", en við höfum snúið blaðinu við og síðustu tvö ár hafa þeir verið eins langt frá því að vera hviklyndir eins og hægt er. Þeir hafa ferðast um allt, það hefur verið uppselt í hverri viku á heimaleikina og við getum ekki beðið um meira. Ef við erum ekki yfir í leikjum halda áhorfendurnir samt áfram að styðja við bakið á okkur, og það verður að vera þannig því að við gerum okkar besta í hverjum leik og við metum stuðning áhorfenda mikið.
Er einhver einn hluti í þínum leik sem þú ert að vinna í, hvað þarfu að bæta?
Ég er að vinna í öllu. Ég er bara 26 ára sem er ekki mikið fyrir markvörð og ég held að þegar þú hættir að læra þá lendir þú í vandræðum. Ég er ennþá að læra.
Getur dóttir þín sagt Tottenham?
Já, hún getur það. Við segjum við hana: Fyrir hverja spilar pabbi?" og hún segir "Tottenham" og svo syngur hún "England’s England’s number 1."
Áttu Paul Robinson könnu úr Tottenhambúðinni?
Mér var gefin svoleiðis kanna þegar ég kom hingað fyrst. Ég er með hana í eldhússkápnum? Nei, reyndar notar dóttir mín hana undir vaxlitina sína.
Hvernig er dæmigerður leikdagur hjá þér?
Við hittumst á vellinum hálf ellefu, þannig að ég vakna um hálf átta, dóttir mín vaknar. Ég dunda mér bara eitthvað, fer í sturtu, raka mig, fer í jakkafötin og fer á völlinn. Þar borðum við saman um kortér í 12, svo um leið og við erum búnir fer ég niður í klefa því að mér finnst óþægilegt að sitja lengi í jakkafötunum. Ég fer þá í æfingagallann og horfi á sjónvarpið í búningsklefanum, fer kannski í nudd og bara tek því rólega þangað til við förum að hita upp tíu mínútur yfir tvö.






