Menn verða ekki seldir

0
579

Martin Jol hefur þvertekið fyrir það að hann muni selja marga leikmenn í janúar. Nokkrir leikmenn liðsins hafa undanfarna daga verið orðaðir við önnur félög en Jol segir að hann muni ekki selja þá og vilji halda þeim hópi sem hann hefur.

Leikmenn eins og Pedro Mendes, Michael Brown og Sean Davis hafa verið nefndir í þessu samnbandi en þeir hafa ekki verið mikið með það sem af er tímabilinu.

„Við svo sannarlega ekki að losa okkur við leikmennina sem nefndir eru í blöðunum í dag. Þetta er bara gott fyrir lesendur blaðana.”

„Allir segja að við séum með stóran hóp, með mörgum miðjumönnum og varnarmönnum og það kemur sér til góða. Í hvert einasta skipti sem þessir menn spila standa þeir sig vel, en vandamálið er það að við getum ekki haft þá alla inn á í einu,” sagði Martin Jol.