Spurs 1-1 West Ham

0
582

Enn eina ferðina tókst leikmönnum Spurs ekki að klára leik. Þeir voru betri aðilinn allan leikinn en sköpunargleði þeirra við vítateig andstæðinganna var engin. Þetta er vandamál sem þarf að leysa, annars er hægt að gleyma því að ná Evrópusæti.

Spurs komsust yfir snemma í leiknum en bæði lið byrjuðu leikinn vel þó að Spurs hafi skapað sér fleiri færi. Mark Spurs kom síðan eftir rúmlega korter, Dawson gaf langa sendingu fram sem Mido skallaði glæsilega yfir markvörð West Ham og í tómt markið.

Þetta var óskabyrjun og það sem leikmennirnir þurftu eftir slæman leik gegn Bolton. Eftir markið héldu þeir áfram að pressa en án árangurs, en það var yfirleitt síðasta sendingin sem gerði útslagið.

Seinni hálfleikurinn byrjaði vel og maður hélt að annað markið myndi koma strax miðað við það hvernig leikmennirnir spiluðu boltanum á milli sín. En sköpunargleðin var enn einu sinni ekki til staðar og þegar 20 mínútur voru eftir fóru þeir að missa taktinn og hleypa West Ham aftur inn í leikinn.

Það var ekki spurning hvort heldur hvenær jöfnunarmarkið kæmi og því miður kom það í síðustu sókn leiksins og því enginn tími til að svara.

Ég skrifaði hér eftir leikinn gegn Arsenal að leikurinn við Bolton gæti verið mikilvægur upp á framhaldið, hvort stefnan væri á Evrópusæti eða miðjumoð.

Leikurinn gegn West Ham svaraði þeirri spurningu.

Lið Spurs: Robinson 7, Stalteri 8, Dawson 9, King 7, Lee 6, Tainio 6(Lennon 70), Jenas 6, Carrick 8, Davids 7, Keane 6 (Defoe 79), Mido 8. Ónotaðir varamenn: Kelly, Rasiak og Cerny.