Routledge, loksins!

0
634

Eftir næstum því 3 mánaða fjarveru vegna meiðsla er Wayne Routledge tilbúinn að hefja leik að nýju. Hann verður í byrjunarliði varaliðsins sem tekur á móti Crystal Palace annað kvöld.

Routledge, sem einmitt kom frá Palace, hefur ekkert verið með síðan hann braut bein í fæti í fyrsta leik tímabilsins en hann er nú tilbúinn að leik að nýju.

„Wayne verður í byrjunarliðinu á miðvikudaginn með varaliðinu, sem er gott,” sagði Martin Jol. „Hann var mjög óheppinn með meiðslin og þetta er búið að vera erfitt fyrir hann en við höfum verið með Aaron Lennon og það sjá allir að hann er spennandi leikmaður.”

Ekki er þó búist við því að hann verði með um helgina gegn Wigan, en ef svo er verður hann án efa á bekknum.

DEILA
Fyrri fréttSpurs 1-1 West Ham
Næsta fréttWigan 1-2 Spurs