Wigan 1-2 Spurs

0
652

Fyrsti sigur Spurs síðan 15. október kom í dag þegar Wigan voru lagðir að velli 2-1 með mörkum frá Robbie Keane og Edgar Davids, sem átti frábæran leik. Byrjunarliðið var það sama og í síðasta leik og Jermain Defoe aftur á bekknum. Sigurinn lyftir Spurs upp í 5. sæti deildarinnar, en öll liðin fyrir neðan eiga leiki inni.

Tottenham komust yfir strax í upphafi þegar sending Teemu Tainio fór framhjá varnamanni Wigan og beint í lappirnar á Robbie Keane sem skoraði örugglega. Keane átti síðan nokkur hálffæri næstu mínúturnar en honum tókst ekki að bæta við. Wigan ógnuðu Spurs ekki mikið og reyndi ekkert á Paul Robinson í þessum leik.

Vandamál Spurs í síðustu leikjum hefur verið það að þeim hefur ekki tekist að klára leiki þegar þeir eru yfir. Þegar leið á seinni hálfleikinn fóru Wigan að auka sóknarþunga sinn og margir óttuðust hið versta.

En besti maður Spurs í dag, Edgar Davids, tryggði Spurs sigur rúmum 10 mínútum fyrir leikslok. Hann pikkaði boltann upp á miðjum vellinum og hljóp með hann alla leið inn í vítateig Wigan þar sem skaut boltanum af krafti í markið.

Wigan náðu síðan að skora mark rétt fyrir leikslok en Spurs náðu að halda út og sigra 2-1. Það er ekki hægt að segja að sóknarleikurinn hafi verið góður og varnarleikurinn ekki heldur en það voru þeir Carrick og Davids sem héldu Wigan í skefjum.

Það sannaði sig í þessum leik að Davids á heima á miðjunni en ekki vinstra megin. Næsti leikur er eftir viku gegn Sunderland á White Hart Lane og ekki er ólíklegt að Wayne Routledge verði orðinn leikfær fyrir þann leik, en hann ætti að geta eflt sóknarleikinn.

Lið Spurs:  Robinson 6, Stalteri 6, Dawson 7, King 7, Lee 5, Jenas 6, Carrick 8, Davids 9, Tainio 7, Keane 7, Mido 6. Ónotaðir varamenn: Kelly, Brown, Cerny, Defoe og Lennon.

DEILA
Fyrri fréttRoutledge, loksins!
Næsta fréttSpurs 3-2 Sunderland