Spurs 3-2 Sunderland

0
574

Tottenham tókst að leggja botnlið Sunderland af velli í dag, 3-2, með mörkum frá Mido, Robbie Keane og Michael Carrick sem skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið eftir rúmlega 1 ár. Sigurinn lyftir Spurs upp í 4. sæti deildarinnar en liðið hefur ekki verið svo ofarlega á þessu stigi tímabils í langan tíma.

Spurs byrjuðu leikinn vel og héldu boltanum vel án þess þó að skapa sér hættulegt færi. En það voru gestirnir sem skoruðu fyrsta mark leiksins og var það stórglæsilegt mark beint úr aukaspyrnu. Eftir markið héldu leikmenn Spurs samt áfram að vera sterkari aðilinn og spila fínan fótbolta.

Það var síðan rétt fyrir hálfleik að jöfnunarmarkið kom, en það var Mido sem skoraði það eftir sendingu frá Keane. Staðan var 1-1 í hálfleik sem voru í raun vonbrigði þar sem Spurs áttu leikinn í fyrri hálfleik.

Robbie Keane kom síðan Spurs yfir strax í upphafi seinni hálfleiks en af endursýningum að dæma var síðasta snerting Keane með höndinni. En eins og oft áður tóku Spurs fótinn af bensíngjöfinni og hleyptu Sunderland aftur inn í leikinn.

Þeir jöfnuðu og stuttu síðar fengu Spurs vítaspyrnu þegar Robbie Keane var í baráttu við Gary Breen um boltann. Keane tók spyrnuna sjálfur, enda hefur hann aldrei misnotað vítaspyrnu fyrir Spurs, en í þetta skiptið missti hann marks og spyrnan var varin.

Þetta var dæmigert fyrir Spurs, ráða lögum og lofum á vellinum gegn botnliði án þess að valta yfir þá. Hjartað var í hálsinum næstu mínúturnar en innkoma Aaron Lennon gjörbreytti sóknarleiknum og þá var sigurinn í sjónmáli.

Michael Carrick skoraði síðan sigurmarkið rúmum 10 mínútum fyrir leikslok, en hann hefur verið einn af bestu mönnum Spurs síðustu vikur og því viðeigandi að hann skyldi skora markið.

Það má segja að þessi sigur hafi verið heppni en gegn sterkari liði hefðu Spurs ekki unnið þennan leik. Það sem hrjáir leikmennina þessa dagana er að þeir virðast ekki geta klárað leiki þegar þeir eru betri aðilinn og ef draumur allra um Evrópukeppni á að rætast þá þurfa þeir að leiðrétta þennan vanda.

En fyrir utan það eru þeir að spila vel og full ástæða til að vera bjartsýnn á framhaldið.

Lið Spurs: Robinson 6, Stalteri 7, Dawson 6, King 6, Lee 7, Jenas 5 (Lennon 7 63), Carrick 7, Davids 7, Tainio 8, Mido 8, Keane 7 (Defoe 74). Ónotaðir varamenn: Cerny, Pamarot og Reid

DEILA
Fyrri fréttWigan 1-2 Spurs
Næsta fréttJol lofar Carrick