Middlesboro 3-3 Spurs

0
561

Tottenham gerðu 3-3 jafntefli við Middlesboro á útivelli í gær og mörk Spurs gerðu þeir Robbie Keane, Jermaine Jenas og Mido. Spurs komust yfir en lentu síðan tvisvar undir og sýndu mikinn styrk að koma til baka og ná jafnteflinu. Jermain Defoe átti mjög gott marktækifæri rétt fyrir leikslok en honum tókst ekki að skora.

Ein breyting var á byrjunarliðinu frá síðasta leik, Andy Reid kom inn í stað Teemu Tainio sem er meiddur. Jermain Defoe meiddist síðan eftir að hann kom inn á og verður hann líklega frá keppni yfir jól og áramót.

Robbie Keane kom Spurs yfir um miðjan fyrri hálfleikinn eftir að Mido hafði skallað boltann niður eftir fyrirgjöf frá Lee. Hvorugt liðið hafði skapað sér nein marktækifæri fram að því en eftir markið opnaðist leikurinn mikið og voru varnir beggja liða frekar opnar.

Heimamenn jöfnuðu skömmu síðar en Lee hefði kannski getað verið nær Yakubu þegar boltínn féll fyrir hann. Þeir komust síðan yfir rétt fyrir hálfleik með skoti sem fór af Yakubu og í markið en boltinn hafði verið á leiðinni framhjá.

Spurs hófu seinni hálfleikinn betur en þann fyrir og voru betri aðilinn fram að jöfnunarmarkinu sem Jermaine Jenas skoraði glæsilega beint úr aukaspyrnu. Eftir markið lögðust leikmenn Spurs hins vegar aftur á bakið og hleyptu Boro inn í leikinn og geta þeir bara þakkað Paul Robinson fyrir að þeir hafi ekki gert út um leikinn.

Þeir komust síðan óhjákvæmlega aftur yfir með skallamarki eftir hornspyrnu en boltinn fór rétt svo yfir línuna. Aðstoðardómarinn hefði getað sleppt því að dæma mark en frá hans sjónarhorni var erfitt að sjá hvort boltinn hafði farið yfir línuna, en réttur dómur engu að síður.

Spurs sýndu síðan þann dug og kraft sem í þeim býr og jöfnuðu leikinn 3-3 rúmum 10 mínútum fyrir leikslok með skallamarki Mido eftir hornspyrnu. Eftir markið áttu bæði lið tækifæri að sigra leikinn en hvorugu liði tókst að skora.

Einn leikmanna Boro, James Morrison, varð síðan fyrir óhappi undir lok leiksins og missti hann meðvitund um skamman tíma en sem betur fer er í lagi með hann.

Að leikslokum var jafntefli í raun sanngjörn úrslit og Spurs geta verið mjög sáttir við stigið enda hefur Middlesboro verið eitt af þeim liðum sem hafa valdið Spurs hvað mestum vandsræðum síðustu ár, sérstaklega á útivelli.