Tainio frá í 1-2 vikur

0
509

Teemu Tainio verður frá keppni næstu vikurnar en hann meiddist í leiknum gegn Portsmouth á mánudagskvöldið. Tainio hefur verið að spila vel fyrir Spurs í síðustu leikjum en hann hefur spilað á báðum köntum sem og á miðjum vellinum.

Martin Jol sagði: „Teemu er með smá álag á liðböndunum í hnéinu og þetta gæti tekið viku eða tvær vikur.”

„Ég vona að hann nái sér fljótt því að hann hefir spilað vel undanfarið. Hann leggur sig alltaf 100% fram og ég vona að hann nái sér sem fyrst,” sagði Martin Jol.