Búið er að staðfesta að allir leikir Tottenham í mars verða sýndir í beinni útsendingu hjá Sky og væntanlega þá einnig á Enska Boltanum. Einn þessara leikja er útileikur við Chelsea en eins og flestir vita er löngu kominn tími á að sigra þá.
Leikirnir eru: Blackburn Rovers heima á sunnudeginum 4. mars kl. 16:00, útileikur við Chelsea 11. mars kl. 12:45, útileikur við Birmingham City 18. mars kl. 17:15, West Brom á heimavelli mánudaginn 27. mars kl. 19:00 og loks Manchester City a heimavelli laugardaginn 8. apríl kl. 11:45.






