Gamla árið kvatt með glæsibrag

0
783

Eins og West Brom leikurinn var lélegur var leikurinn gegn Newcastle frábær sérstaklega seinni hálfleikur. Jol gat telft fram Tainio aftur en Rasiak var meiddur.

Við sýndum frá upphafi betri leik en gegn West Brom en náðum þó ekki yfirhöndinni. Við náðum þó að opna vörn þeirra og það notaði Tainio sér og skoraði sitt fyrsta mark fyrir Tottenham eftir skalla frá Mido. Rétt í restina á fyrri hálfleik meiddist Owen og kom ekki út eftir hlé. Hvort það var ástæðan eða ekki þá tóku okkar menn öll völd á vellinum og gerðu út um leikinn þegar Mido gerði sitt áttunda mark. Allt liðið var að spila vel og sérstaklega Keane, Mido, Jenas, Carrick og Davids. Þá var Gardner að leika mun betur en gegn West Brom og Dawson klikkar bara ekki. Það er ekki langt síðan Tottenham hefði ekki getað komið svona til baka eftir slæma leiki eins og við gerðum núna, sem sínir hvað við höfum farið langt undir stjórn Jol. Þetta er einkenni góðra liða að koma strax til baka eftir tap. Nú er bara að halda svona áfram á miðvikudag og sunnudaginn og svo leik eftir leik eftir það.

Liðið: Robinson, Stalteri, Lee, Dawson, Gardner, Tainio (Brown, 67), Davids, Jenas, Carrick, Mido, Keane (Defoe, 79). Varamenn: Cerny, Pamarot, Lennon.