Þrátt fyrir mikla yfirburði tókst okkur ekki að sigra Aston Villa í gær laugardag og niðurstaðan markaslaust jafntefli mikil vonbrigði. Markmaður Villa ásamt viðverandi vanda okkar manna að skora voru meginástæðurnar fyrir þessari niðurstöðu. Jol ákvað að leika 4-3-3 leikkerfið með Defoe fyrir Mido og Tainio frammi með þeim Defoe og Keane. Davids, Carrick og Jenas voru svo á miðjunni og vörnin var óbreytt utan það að Kelly kom inn í liðið fyrir Stalteri sem tókur út leikbann. Robinson var svo í markinu að vanda. Jenas þurfti að fara af velli rétt fyrir hlé vegna meiðsla og kom Lennon inn fyrir hann.
Í seinni hálfleik meiddist Davids og kom Brown inn fyrir hann. Tainio varð svo að fara af velli undir lok leiksins en þá vörum við búnir að nota alla vara menn og lékum því 10 síðustu mínúturnar eins og Villa sem hafði misst Barry útaf með annað gula spjaldið sitt.
Robinson; Kelly; Dawson; King; Lee; Jenas (Lennon 44); Carrick; Davids (Brown 62); Tainio; Keane; Defoe (Rasiak75).
Varamenn: Cerny; Gardner






