Á laugardag lék Tottenham 50 leik sinn undir stjórn Martin Jol í Úrvalsdeildinni. Á þessum tímamótum er ekki úr vegi að líta aðeins á árangur hans með liðið.
Af þessum 50 leikjum hefur sigur unnist í 22, jafntefli orðið í 14 og 14 leikir hafa tapast. Markatalan er 51 gegn 50. Það gerir 53,3% árangur
Þessi árangur kemur Jol í 5. sæti stjóra Tottenham frá upphafi yfir árangur í fyrstu fimmtíu deildarleikjum sem þeir stjórnuðu liðinum.
Efstur í þessum hóp er Arthur Rowe (1949) með 66% árangur. Annar er Peter Shreeves (1984) með 60% árangur. Í þriðja sæti er svo David Pleat (1986) með 58,7% árangur. Fjórði er Pearcy Smith (1930) með 55,3% árangur og Jol er svo næstur í fimmta sæti með 53,3%. Garry Francis er svo sjötti með sama árangur í prósentum en hann vann ekki eins marga leiki og er því sjötti. Hoddle og Gaham náðu 46,7% svona rétt til að sýna árangurinn í réttu ljósi. Bill Nicholsson var með 47,3%.
Þess má geta að Rowe vann 30 af þessum 50 leikjum.
(miðað er við þriggja stiga regluna, ártalið aftan við nöfnin er árið sem þeir taka við liðin).






