Slæmur endir á lélegum janúar

0
618

Ekki varð eftirtekjan úr leiknum gegn Fulham mikil frekar en öðrum leikjum sem við spiluðum í janúar. Jol varð að stilla upp með Rasiak í sókninni og Reid á vinstri kanti ásamt því að Kelly var settur í vinstri bakvörðinn. Að öðru leiti var liðið svipað og áður, Robinson í markinu, King og Dawson ásamt Stalteri í vörninni. Carrick var á sínum stað svo og Jenas og Lennon var svo á hægri kantinum. Keane var svo með Rasiak frammi. Tvennt vakti athygli á varamannabekknum. Annað jákvætt hitt neikvætt. Það jákvæða var að Huddlestone var þar í fyrsta skipti og átti hann eftir að koma inn á. Vera Jackson á bekknum var svo það neikvæða.
Fyrri hálfleikur var ekki góður hjá Tottenham. Við vorum að láta Fulham pressa okkur og okkar menn náðu ekki takti. Það olli líka vandræðum að Reid varð að fara af velli meiddur og fór þá Lennon á vinstri kant og Jenas á hægri en Huddlestone kom inn á miðjuna. Hann stóð sig bara nokkuð vel og betur eftir því sem leið á leikinn í þessum fyrsta leik sínum fyrir Tottenham. Í seinni hálfleik náðum við svo algerum yfirburðum á vellinum en þá var Dawson rekinn útaf með annað gula spjaldið sitt. Við það jafnaðist leikurinn og við fáum svo á okkur þetta mark á 90. mínútu og því erfitt að bjarga neinu. Við áttum að fá víti þegar Jenas var klipptur niður í teignum en fengum ekki. Inná koma Defoe breytti engu, en hann náði einu góðu skoti á markið sem var varið.
Vandinn var hinsvegar að við erum ekki að nýta færinn og það verður að breytast. Kannski Danny boy eigi að koma þar til hjálpar.
Við lékum fjóra leiki í janúar og unnum einn, gerðum jafntefli í einum og töpuðum tveim. Í desember lékum við 6 leiki og unnum fjóra en töpuðum aðeins einum. Ég tel mig ekki hjátrúarfullan en það er undarlegt hvað okkur gengur illa í bláu búningunum sem við lékum í, í gær. Má nefna WBA og Leicester leikina í því sambandi.