Defoe kláraði Charlton

0
644

Jermain Defoe skoraði 2 mörk í 3-1 sigri Spurs á Charlton í ensku úrvalsdeildinni í dag. Sigurinn var sa fyrsti fyrir Spurs í síðustu 4 leikjum og svo sannarlega mikilvægur til að halda einhverju bili í liðin í næstu sætum. Defoe og Keane voru saman í byrjunarliðinu aðeins í 3. skipti á þessu tímabili og stóðu þeir sig báðir mjög vel í dag.

Martin Jol gerði nokkrar breytingar á liðinu frá síðasta leik, Gardner, Tainio og Defoe komu inn í staðinn fyrir Dawson(leikbann), Reid og Rasiak.

En það var augljóst að þó svo að Tainio væri með var hann ekki búinn að ná sér að fullu og þurfti hann því að fara af velli um miðjan fyrri hálfleikinn. Inn í hans stað kom Tom Huddlestone og steig hann ekki feilspor allan leikinn.

Tottenham byrjuðu leikinn betur en Charlton og sóknarleikurinn var mjög líflegur með þá Keane, Defoe og Lennon í broddi fylkingar. Spurs uppskáru mark eftir rúmlega 10 mínútna leik og var það Defoe sem gerði markið eftir að hafa snúið sér framhjá nokkrum varnarmönnum.

Markið lyfti leikmönnum Spurs svo sannarlega og komust Charlton í mjög fáar sóknir í fyrri hálfleik. Annað markið kom síðan rétt fyrir hálfleik og var það nafni Defoe, Jermaine Jenas, sem gerði það mark eftir sendingu frá Robbie Keane.

Staðan var 2-0 í hálfleik en Aaron Lennon, sem hafði verið mjög skeinuhættur í sóknarleiknum, var skipt útaf í hálfleik vegna meiðsla og í hans stað kom Johnnie Jackson sem hefur verið í láni síðustu mánuði.

Ekki hafði fjarvera Lennons slæm áhrif á liðið en þriðja markið kom strax í upphafi seinni hálfleiks og var það Jermain Defoe sem skoraði það afar glæsilega með því að lyfta boltanum yfir markvörð Charlton.

Leikmenn Spurs hægðu aðeins á spilamennsku sinni næstu mínútunar og gáfu Charlton tækifæri að komast inni í leikinn. Það gerðu þeir með því að skora mark rúmum 20 mínútum fyrir leikslok.

Það kom hins vegar ekki að sök og unnu Tottenham öruggan 3-1 sigur til að halda 4 stiga forskoti á Arsenal sem eru í 5. sæti.

Næsti leikur Spurs er síðan á sunnudaginn kemur gegn Sunderland á útivelli og verða leikmenn Spurs að líta á það sem gott tækifæri til að ná í 3 stig til viðbótar.

Lið Tottenham: Robinson 7, Stalteri 8, King 6, Gardner 6, Kelly 7, Lennon 7 (Jackson 45, 6), Jenas 7, Carrick 9, Tainio 6 (Huddlestone 25, 8), Keane 7, Defoe 8. Ónotaðir varamenn: Cerny, Davenport og Barnard