Allar líkur eru á því að Robbie Keane og Jermain Defoe muni vera áfram í byrjunarliði Spurs í leik liðsins við Sunderland á sunnudaginn. Einhver möguleiki er að Mido verði kominn aftur eftir Afríkukeppnina en það er frekar ólíklegt að hann verði með.
Enn er Martin Jol að glíma við meiðsli þeirra Edgar Davids og Teemu Tainio en sá síðarnefndi mun væntanlega vera frá næstu vikurnar eftir að hafa þurft að fara meiddur útaf gegn Charlton í síðasta leik.
Davids er í leikmannahópnum og eru möguleikar hans á að spila taldir frekar góðir. Þá mun Danny Murphy líklega spila sinn fyrsta leik fyrir félagið en hann mátti ekki leika um síðustu helgi vegna samkomulags milli Charlton og Spurs.
Hópur Tottenham: Robinson, Cerny, Stalteri, Lee, Gardner, King, Lennon, Murphy, Huddlestone, Kelly, Jackson, Defoe, Keane, Carrick, Jenas, Barnard, Davids og Davenport






